Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hátíðartónleikar í Bergi í Hljómahöll

10. desember kl. 12:00-13:00

Upplýsingar um verð

Aðgangur er ókeypis
Haldnir verða sérstakir hátíðartónleikar í Bergi í Hljómahöll laugardaginn 10. desember, klukkan tólf. Tónleikarnir eru í boði sendiráðs lýðveldisins Póllands á Íslandi í samstarfi við Reykjanesbæ.

Í kjölfar þess að haldin hefur verið Pólsk menningarhátíð um nokkurra ára skeið í Reykjanesbæ hafa skapast jákvæð og góð samskipti við sendiráðið og þakkar Reykjanesbær sendiherrahjónunum kærlega fyrir hlýhug í garð íbúa sveitarfélagsins.

Tónleikarnir fara fram í hádeginu svo það er upplagt að hefja jólaundirbúninginn þann daginn með því að mæta í Berg og taka inn jólaandann áður en haldið er út í daginn í önnur jólaverkefni. Á efnisskrá eru jólalög og verk eftir íslensk og pólsk tónskáld og tekur öll dagskráin um eina klukkustund.

Flytjendur eru ísfirsku bræðurnir Mikolaj Ólafur Frach sem leikur á píanó, Maksymilian Haraldur Frach sem leikur á víólu og Nikodem Júlíus Frach sem leikur á fiðlu og með þeim er sópransöngkonan Patrycja Wiatr og má því reikna með sannkallaðri tónlistarveislu.

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og eru öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur á tónleikana er í gegnum Rokksafn Íslands.

GPS punktar

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Staðsetning

Hljómahöll, Hjallavegur 2, Ytri-Njarðvík, Reykjanesbær, Iceland

Sími