Upplýsingar um verð
7.900 kr.
Kór Keflavíkurkirkju og Kór Akraneskirkju ætla í sameiningu að flytja rokksöngleikinn Jesus Christ Superstar eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar í Hljómahöll 21. mars kl. 17.
Um er að ræða 100 manna kór. Fjölda einsöngvara innan raða kóranna munu koma fram ásamt hljómsveit og hljóðfæraleikurum. Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson organisti í Keflavíkurkirkju og Hilmar Örn Agnarsson organisti í Akraneskirkju. Eyþór Ingi og Stebbi Jak munu syngja Jesú og Júdas.
Flestir þekkja rokksöngleikinn en hann segir frá síðustu dögum Jesú, séð að stórum hluta frá sjónarhorni Júdasar.