Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Maðurinn sem Elskar Tónlist

28. mars kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

Ókeypis meðan húsrúm leyfir
Heimildakvikmyndin Maðurinn sem Elskar Tónlist eftir Jóhann Sigmarsson verður sýnd í Bergi í Hljómahöll laugardaginn 28. mars kl. 20:00. Ókeypis aðgangur er á meðan húsrúm leyfir.
 
Myndin fjallar um líf og feril tónlistarmannsins Þóris Baldurssonar, sem hefur átt yfir sjötíu ára feril í tónlist. Fylgst er með honum frá æsku í Keflavík þar sem hann byrjaði ungur að spila á píanó og stofnaði sína fyrstu hljómsveit aðeins 12 ára gamall.
 
Í heimildamyndinni rifjar Þórir upp feril sinn, heimsækir staði sem tengjast tónlistarlífi hans og hittir gamla vini og samstarfsmenn úr tónlistarbransanum. Á ferlinum starfaði hann bæði á Íslandi og erlendis og vann meðal annars með þekktum tónlistarmönnum og listamönnum á borð við ABBA, Elton John, Rolling Stones, Donna Summer og Grace Jones.
 
Myndin gefur innsýn í sögu Þóris, þróun tónlistarinnar sem hann tók þátt í að móta og áhrif hennar á tónlistarsenu heimsins.

GPS punktar

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Staðsetning

Hljómahöll

Sími