Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Allar gönguleiðir lokaðar í dag 16. júlí

Gas og reyk leggur yfir gönguleiðirnar.
Mynd: Þráinn Kolbeinsson
Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Lokað verður áfram að gosstöðvunum í dag, sunnudag 16. júlí.

Það er gert til að tryggja öryggi viðbragðsaðila og ferðamanna.  Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda.   Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður. 

Vindátt er óhagstæð göngufólki þó dregið hafi aðeins úr vindi.   Reykur frá gróðureldum og gosi berst yfir gönguleiðir að gosstöðvum.

Í dag mun slökkvilið einbeita sér að slökkva í gróðureldum norðan við eldstöðvarnar.  Þyrla landhelgisgæslunnar kemur að slökkvistarfi en á fjórða tug manna koma að þessum aðgerðum sem hófust nú í morgunsárið. 

Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag:

Norðan og norðaustan 8-13 m/s, en hvassari um tíma upp úr hádegi. Gasmengunin berst til suðurs og má því búast við að hennar verði vart á Suðurstandarvegi og á gönguleiðum að gosstöðvunum, jafnvel einnig í Grindavík.
Spá gerð: 16.07.2023 00:06. Gildir til: 16.07.2023 23:59.

Ákvörðun lögreglustjóra um lokun verður endurskoðuð á fundi viðbragsaðila í fyrramálið, mánudag 17. júlí, kl. 9.