Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Allar gönguleiðir opnar til kl. 18:00

Af öryggisástæðum verður gönguleiðum frá Suðurstrandarvegi því lokað daglega kl. 18.00. Sú ákvörðun gildir á meðan gos stendur yfir við fjallið Litla Hrút.
Gos við Litla Hrút. Mynd: Hörður Kristleifsson
Gos við Litla Hrút. Mynd: Hörður Kristleifsson

Í dag er opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði og ekki opið almenningi.

Gönguleiðum inn á svæðið verður lokað kl. 18 í dag

Af öryggisástæðum verður gönguleiðum frá Suðurstrandarvegi því lokað daglega kl. 18 (fyrr eða seinna eftir atvikum, þegar opið er). Sú ákvörðun gildir á meðan gos stendur yfir við fjallið Litla Hrút.

Vigdísarvallavegi verður lokað samhliða lokun gönguleiða.

Uppfært kort yfir hættusvæði var gefið út í gær (20. júlí) og fylgir neðst í fréttinni. Sjá einnig hér.

Gönguleiðir:

  • Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið (E-blá). Ganga þarf um 18 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka tekur um 5 til 7 klukkustundir. Aðrar gönguleiðir samkvæmt korti eru jafnframt opnar.
  • Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.
  • Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.

Viðbragðsaðilar:

  • Lögreglumenn, björgunarsveitarmenn, landverðir og sjúkraflutningamenn eru á svæðinu.

Öryggisupplýsingar:

Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði/bannsvæði.

  • Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega.
  • Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir.
  • Lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar.
  • Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.
  • Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum.
  • lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum.
  • Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð.

Bílastæði:

  • Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.
  • Akstur utan vega er bannaður.

Vinsamlegast farið að fyrirmælum viðbragðsaðila.

Sjá jafnframt upplýsingar á:

Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag:

Norðvestan og vestan 3-8 m/s í dag. Gasmengun frá gosinu berst til suðausturs og austurs yfir Suðurland.
Spá gerð: 22.07.2023 21:38. Gildir til: 23.07.2023 23:59.

Heimild: Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (23. júlí 2023 @9.10) og Veðurstofa Íslands (20.júlí 2023)