Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bjór og vindmyllur í Bláa Lóninu

Íslandsstofa hélt áhugaverða vinnustofu í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og atvinnuþróunarfélagið Hekluna þar sem hagsmunaaðilum á svæðinu var boðið að borðinu með það að markmiði að kortleggja þá þætti sem stuðlað geta að vexti á útflutningi á vöru og þjónustu á svæðinu.

Vinnustofan sem fram fór í Bláa Lóninu var vel sótt og ferskar og frumlegar hugmyndir litu dagsins ljós. Þar var m.a. rætt um: ræktun á grænmeti á Reykjanesi, uppsetningu á vindmyllum, bjór, snyrtivörur unnar úr hráefni af svæðin, aukið sjóeldi á landi og margt fleira spennandi. Það mátti greina á fundinum að nálægð við flugvöllinn þykir áhugaverður kostur þegar kemur að viðskiptum við umheiminn og eins hvað varðar uppbyggingu á svæðinu í framtíðinni.