Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fagmennska og gæði í ferðaþjónustu á Reykjanesi

Haldinn 17. apríl 2023, kl. 10:00 í Stapa, Hljómahöll
Tindar Reykjaness. Grænadyngja - Mynd: Þráinn Kolbeinsson
Tindar Reykjaness. Grænadyngja - Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Markaðsstofa Reykjaness í samstarfi við Hæfnissetur ferðaþjónustunnar og SAF býður til opins fundar í Hljómahöllinni, Reykjanesbæ, mánudaginn 17. apríl, kl. 10.00.

Á fundinum verður sjónum beint að fagmennsku og gæðum í ferðaþjónustu á Reykjanesi.
Á dagskránni eru fjölbreyttir fyrirlestrar um skapandi hugsun, gæði og fræðslu, auk þess sem góðir gestir koma til með að sitja í pallborði.  Leikkonan María Ellingsen verður gestur fundarins og mun flytja erindi um - Að deila fjársjóði í lok fundar. 
Boðið verður upp á hádegishressingu og tenglamyndun í lok dagskrár.

Fundarstjóri er Þuríður Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness.

Þátttaka á fundinum er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Nánari dagskrá og skráningarhlekk er að finna í hér.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Markaðsstofa Reykjaness, SAF og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar