Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir aftur eftir umsóknum

Vegna formgalla við birtingu auglýsingar sem birtist 24. september sl. er auglýst að nýju eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022.
Útsýnispallur við Brimketil. Mynd: Ozzo
Útsýnispallur við Brimketil. Mynd: Ozzo

Vegna formgalla við birtingu auglýsingar sem birtist 24. september sl. er auglýst að nýju eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Umsóknir sem sendar voru inn skv. fyrri auglýsingu halda gildi sínu og ekki þörf á að senda þær aftur inn.

Opnað verður fyrir umsóknir mánudaginn 15. nóvember og er umsóknarfrestur til kl. 13.00, þriðjudaginn 7. desember. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Umsóknum skal skila rafrænt inn í gegnum island.is.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins ásamt frekari upplýsingum um skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir.

Sjá nánar:
Auglýsing á vef Ferðamálastofu