Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fróðleg gönguferð undir Vogastapa - gengið á Svartsengisfell 4. júlí

Reykjanes Geopark býður upp á útivist fyrir almenning í sumar í samstarfi við Bláa Lónið og HS Orku. Markmið verkefnisins er að kynna einstakt umhverfi og menningu Reykjanes Geopark fyrir almenningi gegnum útivist, fróðleik og skemmtun. Líkt og fyrri ár verður dagskrá sumarsins 2019 fjölbreytt og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Á dögunum efndu Sögu- og minjafélagið í Vogum og Reykjanes UNESCO Global Geopark til gönguferðar í Vogum. Það voru liðlega þrjátíu manns sem mættu og tóku þátt, þrátt fyrir rigningarsudda. Ferðinni var heitið að Brekku undir Vogastapa, þar sem búið var í tæp 100 ár, fram til byrjunar 20. aldar.

Gangan hófst við Stóru-Vogaskóla, undir öruggri leiðsögn Hauks Aðalsteinssonar. Á leiðinni var m.a. staldrað við rústir Stóru-Voga, sem talið er að hafi verið fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið sem reist var á Suðurnesjum. Áfram var haldið eftir góðum göngustíg sem umlykur byggðina í Vogum, og staldrað næst við upplýsingaskiltið um Sæmundarnef. Þar var drepið á útgerðasögu, einkum árabátaútgerð, sem var fyrirferðamikil í Vogum á öldum áður. Vogavíkin var gjarnan kölluð Gullkistan, svo fengsæl voru fiskimiðin þar. Þá var haldið sem leið liggur eftir fallegri svartri sandfjöru austan við Hvammsgötu. Þar í fjöruborðinu má m.a. sjá leifar af mógröfum.

Áfram var haldið og stefnan nú tekin að Brekku undir Vogastapa. Þessu næst var komið að rústum Brekku, eins þriggja býla þar sem heilsársbúseta var undir Vogastapa. Haukur sagði frá lífi fólksins á þessum slóðum, þegar mest var bjuggu um 30 manns á þessum stað, á þremur býlum. Gengið var um svæðið og rústir fleiri býla skoðaðar, og drepið á útgerðasögunni. Tveimur tímum eftir brottför komu göngumenn sælir og glaðir til baka að Stóru-Vogaskóla, en eilítið blautir og hraktir. Vel heppnuð ferð í alla staði, og þátttakan góð.

Nánar um útivist í Reykjanes Geopark og næstu ferðir:

4. júlí – Gönguferð með jarðfræðingi HS Orku. Gengið verður á Svartsengisfell

18. júlí – Gengið um Húshólma með Minjaverði Reykjaness

15. ágúst – Söguslóðir Sigvalda Kaldalóns í Grindavík með Söngvaskáldum á Suðurnesjum