Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Lokað að gosstöðvum í dag

Lokað í dag vegna mengunar að slæmra skilyrða
Mynd: H0rdur
Mynd: H0rdur

Í morgun var tekin ákvörðun um að hafa áfram lokað að gosstöðvunum í dag, 15. júlí. 

Það er gert til að tryggja öryggi ferðamanna og viðbragðsaðila.  Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda.   Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður. 

Hvasst er í dag við gosstöðvarnar og vindátt óhagstæð göngufólki. Reykur frá gróðureldum og gosi liggur yfir gönguleið að gosinu.

Verið er að bæta mælingar á mengun á gossvæðinu en því verki er ekki lokið. Unnið er áfram að lagfæringum á svæðinu.

Ákvörðun lögreglustjóra um lokun verður endurskoðuð á fundi viðbragsaðila í fyrramálið, 16. júlí, kl. 9.