Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Öllum gönguleiðum lokað

Gönguleiðir lokaðar vegna mengunar og öryggis á gossvæðinu. Ákvörðunin endurskoðuð laugardaginn 15. júlí.
Mynd: Þráinn Kolbeinsson
Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að loka Meradalaleið upp að gosstöðvunum og eins öllum gönguleiðum um eldra gossvæðið. 

Ákvörðunin er tekin til að tryggja öryggi ferðamanna og viðbragðsaðila.  Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda. Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður.  Þá hætta mjög margir sér inn á skilgreint hættusvæði og hundsa fyrirmæli viðbragðsaðila.  

Hvasst verður í dag og á morgun við gosstöðvarnar og vindátt óhagstæð göngufólki.  

 

Lokun tekur þegar gildi og verður ákvörðun lögreglustjóra endurskoðuð eftir fund viðbragsaðila kl. 9 laugardaginn 15. júlí nk.