Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opið á Merardalaleið

Göngukort fylgir fréttinni
Gögnukort af svæðinu
Gögnukort af svæðinu

Opnað hefur verið inn á svæðið og er Meradalaleið nú opin.

Ríkislögreglustjóri lýsir yfir almannavarnastigi í samráði við viðkomandi lögreglustjóra.

  • Við upphaf eldgossins við fjallið Litla Hrút 10. júlí sl. lýsti ríkislögreglustjóri yfir hættustigi. Var það gert með hliðsjón af alvarleika atburða og þörf á nauðsynlegum viðbúnaði viðbragðsaðila.
  • Hættustund hefst þegar hættustigi eða neyðarstigi almannavarna er lýst yfir og lýkur þegar hættustigi eða neyðarstigi er aflýst.
  • Á hættustundu virkjast valdheimildir sem kveðið er á um lögum um almannavarnir. Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að ákveða að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, þ.m.t. tilteknar fasteignir, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk. Fyrirmælum þessu er öllum skylt að hlíta.

Meðfylgjandi kort sýnir gönguleiðir og skilgreint hættusvæði að mati Veðurstofu Íslands. Sækja hér í pdf.

Ekki er leyfilegt að dvelja inn á hættusvæðinu og er öll umferð um það bönnuð.

Slökkvistarf heldur áfram en talið er óhætt að hleypa fólki inn á Meradalaleið. Lögregla, landverðir og björgunarsveitir verða á svæðinu en lögð er áhersla á að fólk fari ekki inn á skilgreint hættusvæði.