Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samspil náttúru og hönnunar til fyrirmyndar við Brimketil og Gunnuhver

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við systurstofnanir á Norðurlöndum, hefur gefið út dæmi um leiðir og lausnir í hönnun sem ýta undir náttúruupplifun og náttúruvernd á vefsíðunni NatNorth.is. Á meðal þeirra verkefna sem eru þar til umfjöllunar eru aðgengislausnir sem framkvæmdar voru við Brimketil og Gunnuhver á Reykjanesi.

Náttúran er meginaðdráttarafl á Norðurlöndum sem sífellt fleiri sækja heim. Á sama tíma verður náttúran fyrir auknum ágangi og þrýstingi vegna fjölgunar ferðamanna. Markmið verkefnisins Hönnun í náttúru er að auka þekkingu, efla gæði, og sýna með dæmum hvernig beita má hönnun og arkitektúr til að takast á við náttúrutengdar áskoranir sem Norðurlönd standa frammi fyrir út frá sjónarhóli ferðamennsku og sjálfbærni.

Í verkefninu, sem unnið er af hönnuðum og sérfræðingum frá Danmörku, Finnlandi, Grænlandi, Íslandi og Noregi, er rýnt í arfleifð, samtímaverkefni og mögulegar framtíðarlausnir. Varpað er ljósi á niðurstöðu verkefnisins í gegnum sextíu hönnunarverkefni, frá Norðurlöndunum sem öll eru aðgengileg almenningi og stuðla að aðgengi allra- eða greiða leið að stöðum sem áður voru óaðgengilegir.

Hönnun í náttúru er eitt þriggja verkefna á NatNorth.is sem eru unnin undir hatti Sjálfbærrar ferðamennsku í norðri, eitt af formennskuverkefnum Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2019-2021. Hin tvö verkefnin eru Clean Energy (Hrein orka), leitt af Orkustofnun og Nature Conservation (Umhverfisvernd), leitt af Umhverfisstofnun. Verkefnin miða að því að auka þekkingu, efla gæði og yfirsýn yfir áskoranir og tækifæri Norðurlanda í samhengi sjálfbærrar ferðamennsku í norðri.