Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samstarf Íslandsstofu og Markaðsstofa um markaðssetningu á áfangastaðnum Íslandi

Íslandsstofa og Markaðsstofur landshlutanna hafa skrifað undir samninga um samvinnu við erlenda markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Íslandsstofa og Markaðsstofurnar hafa unnið náið saman um árabil en nú hefur samstarfið verið formgert í samræmi við skilgreint hlutverk nýrra áfangastaðastofa sem Markaðsstofurnar sinna í sínum landshlutum.
Mynd: Þuríður Aradóttir Braun hjá Markaðsstofu Reykjaness og Pétur Óskarsson handsala samninginn
Mynd: Þuríður Aradóttir Braun hjá Markaðsstofu Reykjaness og Pétur Óskarsson handsala samninginn

Íslandsstofa og Markaðsstofur landshlutanna hafa skrifað undir samninga um samvinnu við erlenda markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Íslandsstofa og Markaðsstofurnar hafa unnið náið saman um árabil en nú hefur samstarfið verið formgert í samræmi við skilgreint hlutverk nýrra áfangastaðastofa sem Markaðsstofurnar sinna í sínum landshlutum. Samningurinn er til þriggja ára frá 2021 til og með 2023.

„Markaðssetning á áfangastaðnum Íslandi er samvinnuverkefni,“ segir Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu. „Ísland hefur undanfarin ár markað sér stöðu sem þekktur áfangastaður en það hefur ekki gerst af sjálfu sér og við erum í stöðugri samkeppni við aðra áfangastaði. Árið um kring vinnur fjöldi fólks að því að vekja athygli á Íslandi til að skapa viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum í öllum landshlutum. Við erum lítil í stóra samhenginu en með því að leggja saman krafta okkar náum við slagkrafti og þessir samningar eru liður í að efla gott samstarf.“

Unnið er eftir stefnumótun stjórnvalda um að tryggja sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu um allt land í krafti gæða og fagmennsku og að Ísland verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030. Meðal verkefna eru upplýsingamiðlun, samskipti við fjölmiðla og áhrifavalda, ráðgjöf um efni á vef og markaðsverkefni, uppbygging á sameiginlegum myndabanka og fleira.

Samstarf Markaðsstofa landshlutanna og Íslandsstofu hefur verið mjög gott á undanförnum árum og mikið áunnist fyrir ferðaþjónustuna um allt land. Með þessum samning höfum við staðfest þetta samstarf með formlegum hætti og munum vinna áfram saman að markaðssetningu á landshlutunum með áherslu á erlenda markaðssetningu. Með samstilltu samstarfi eykst slagkraftur okkar fyrir Ísland sem áfangastað og við hlökkum til að vinna sameiginlega að þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir Þuríður Aradóttir Braun, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness.

Í tengslum við samningana heimsóttu fulltrúar Íslandsstofu alla landshlutana til að hitta hagsmunaaðila og kynna sér starfsemi og stöðu ferðaþjónustunnar. Markaðsstofurnar stilltu upp dagskrá og sáu um leiðsögn um sína landshluta. 

Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir til þess að auka útflutningstekjur og hagvöxt. Meðal hlutverka Íslandsstofu er að leiða og hafa yfirsýn yfir ímyndar-, kynningar- og markaðsstarf fyrir Ísland sem áfangastað; sinna greiningarvinnu og miðlun gagna; efla og viðhalda viðskiptatengslum á erlendum mörkuðum; og vera gátt að Íslandi sem áfangastað. Markaðsstofur landshlutanna sinna álíka hlutverki hver fyrir sinn landshluta. Þar er skilgreind sérstaða og áherslur í innviðauppbyggingu og markaðsmálum fyrir hvert svæði og sett fram í áfangastaðaáætlun. Markaðsstofurnar gegna því mikilvægu hlutverki við að miðla upplýsingum og markaðsefni frá sínu svæði til Íslandsstofu og veita ráðgjöf ásamt því að taka þátt í ýmsum markaðsverkefnum á grundvelli þessa samnings.

Mynd: Frá ferð starfsmanna Íslandsstofu með fulltrúum af Reykjanesi í sumar 2021.