Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Verndum hraunið í Geldingadölum

Mikið af fólki streymir að eldgosinu í Fagradalsfjalli á hverjum degi, en það er ekki allir sem ganga vel um svæðið. Við viljum minna á að sýna svæðinu virðingu og ekki skilja eftir ummerki þegar farið er að gösstöðvunum. Textinn fyrir neðan og mynd er tekinn frá Umhverfisstofnun.

" Einstakar jarðminjar

Hraunið frá eldstöðvunum í Geldingardölum eru einstakar jarðminjar sem við þurfum að bera virðingu fyrir og vernda. Þar erum við líklega að verða vitni að fyrsta dyngjugosinu á Íslandi síðan land var numið. Mikilvægt er að kasta ekki grjóti á hraunið, krafsa ekki í það eða skilja eftir sig önnur ummerki. Eldhraun eru undir sérstakri vernd samkvæmt 61. gr laga um náttúruvernd og því er grjótkast upp á hraunið, krafs eða traðk í raun brot á þeirri vernd sem þau eiga að njóta.

Allt að 1200°C heitt hraun

Hraunið er gríðarlega heitt og getur tekið langan tíma að kólna sérstaklega þar sem gosið getur haldið áfram þó við sjáum ekki hreyfingu í gígnum sjálfum. Hraunið rennur þá undir svartri skelinni í hraunhellum eða hvelfingum. Hraunskelin getur auðveldlega brotnað og undir henni getur verið allt að 1200°C heitt hraun. Það er því varhugavert að klifra upp á hraunið og ganga ofan á því. Slík hegðun getur einnig skemmt jarðminjarnar.

Landverðir Umhverfisstofnunar vinna við upphaf gönguleiðar að eldstöðvunum í Geldingadal og upplýsa og fræða gesti um hvernig er hægt að njóta þess að sjá stórbrotin eldsumbrotin í sátt við náttúruna og á öruggan hátt. "

Heimild: https://www.ust.is/umhverfisstofnun/frettir/stok-frett/2021/08/06/Grjotkast-a-hraunid-i-Geldingadolum-/