Viðskiptaheimsókn matvælafyrirtækja til New York
Íslandsstofa, í samstarfi við aðalræðisskrifstofu Íslands í New York skipuleggur ferð fyrir íslenska framleiðendur og útflytjendur á matvælum, einkum sérvörum (speciality food) og drykkjarvörum, til New York dagana 24.-27. júní 2017.
Tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að kynnast sérvörumarkaðnum og viðskiptaumhverfinu í Bandaríkjunum, með áherslu á austurströnd Bandaríkjanna og New York. Farið verður á Fancy Food sýninguna í New York, matvörumarkaðir og sérvöruverslanir heimsóttar og þátttakendur fá kynningu á viðskiptaumhverfinu í Bandaríkjunum.
Í ferðinni verður haldinn fræðslu- og kynningarfundur um viðskiptaumhverfið á bandaríska markaðnum, heimsótt verður matvælasýningin Fancy Food Show í Javits Center í New York, auk þess sem skipulagðar eru heimsóknir á matvörumarkaði, veitingastaði og í verslanir á borð við Eataly, Whole Foods Market og Dean and Deluca.
Þátttaka í ferðinni er kjörið tækifæri fyrir matvælafyrirtæki sem hafa hug á að kynna sér matvælageirann (einkum sérvörumarkaðinn) í Bandaríkjunum nánar, komast í tengsl við dreifingaraðila og kanna grundvöll eða hefja útflutning.