Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

ÁFANGASTAÐAÁÆTLANIR KYNNTAR 15. NÓVEMBER

Þann 15. nóvember 2018 mun Ferðamálastofa halda kynningu á áfangastaðaáætlunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík kl. 13-16.

Þann 15. nóvember 2018 mun Ferðamálastofa halda kynningu á áfangastaðaáætlunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík kl. 13-16.

Sjö áfangastaðaáætlanir
Við gerð áfangastaðaáætlana var landinu skipt upp eftir verkefnasvæðum markaðsstofa landshlutanna sem fóru með verkefnisstjórn á sínum svæðum. Áfangastaðaáætlanirnar eru því sjö talsins og á kynningarfundinum munu verkefnisstjórarnir kynna helstu niðurstöður hvers svæðis. Á eftir kynningunum verður tími fyrir spurningar og umræður.

Dagskrá

  • Ávarp og setning fundar - Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri
  • Helstu niðurstöður hverrar áfangastaðaáætlunar - verkefnisstjórar áfangastaðaáætlana
  • Snertifletir Landsáætlunar um innviði við áfangastaðaáætlanir - Dagný Arnarsdóttir og Jón Geir Pétursson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti
  • Hvernig munu áfangastaðaáætlanir nýtast? - Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundarstjóri verður Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Frekari upplýsingar og skráningu á viðburðinn má finna inn á vef Ferðamálastofu.

Athugið að viðburðinum verður einnig streymt fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta á staðinn.