Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

FRÆÐSLA Í FYRIRTÆKJUM Á ENSKU, ÍSLENSKU OG PÓLSKU

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar stendur fyrir kynningarfundi um þjálfun í gestrisni þriðjudaginn 15. maí, kl. 14:00 – 15:00 í Kviku, Húsi atvinnulífsins.

Kynningarfundur Hæfniseturs ferðaþjónustunnar á Þjálfun í gestrisni verður þriðjudaginn 15. maí, kl. 14:00 – 15:00 í Kviku, Húsi atvinnulífsins. Allir velkomnir.

Þjálfun í gestrisni er efni ætlað til þjálfunar og fræðslu á vinnustað. Fræðsluefnið byggir á raundæmum en það eru fjölbreyttar sögur af atburðarás sem átt hefur sér stað við ákveðnar aðstæður. Efnið skiptist í fjóra flokka: Móttaka og aðbúnaður, veitingar, þrif og umgengni og bílaleiga. Í hverjum starfaflokki eru tíu raundæmi og verkefni.

Sjá nánari dagskrá kynningarfundar hér.

Skráning á kynningarfundinn fer fram á heimasíðu Hæfnisetursins eða beint á skráningarform hér.