Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2022

Skráning er hafin!
Frá Mannamóti Markaðsstofa landshlutanna 2019.
Frá Mannamóti Markaðsstofa landshlutanna 2019.

Markaðsstofur landshlutanna setja upp ferðakaupstefnuna Mannamót Markaðsstofa landshlutanna fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 20. janúar 2022 kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.

Mannamót er orðinn vinsæll vettvangur og mikilvægur til að mynda tengsl og ekki síst efla gömul innan ferðaþjónustunnar. Þar gefts ferðaþjónustuaðilum tækifæri að koma sér á framfæri, kynna nýjar vörur og þjónustu og gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða upp á.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Ef þitt fyrirtæki er ekki skráð sem samstarfsfyrirtæki, þá getur þú bætt úr því með því að senda póst á info@visitreykjanes.is.

Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.

Skráningu lýkur þann 15. desember 2021.
Verð fyrir sýnendur er kr. 19.000+ vsk.

Síðast komust færri að en vildu. Tryggðu fyrirtækinu þínu pláss sem fyrst.
Skráðu þig hér!

Mannamot kynning