Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Poppmenning: skapandi afl í ferðaþjónustu?

Rannsóknamiðstöð ferðamála býður til rafræns kynningarfundar fimmtudaginn 25. nóvember þar sem farið verður yfir hinar ýmsu hliðar poppmenningar ferðaþjónustu.

Rannsóknamiðstöð ferðamála býður til rafræns kynningarfundar fimmtudaginn 25. nóvember þar sem farið verður yfir hinar ýmsu hliðar poppmenningar ferðaþjónustu.

Hver eru tengslin á milli poppmenningar og ferðaþjónustu?
Hvernig getur poppmenning ýtt undir nýsköpun og vöruþróun?


Á fundinum verður samstarfsverkefnið OUTPACE kynnt ásamt fræðsluefni sem útbúið var í tengslum við verkefnið og rædd verða tækifærin sem felast í því að nýta sér poppmenningu í tengslum við vörur og þjónustu innan ferðaþjónustunnar. Þar að auki fáum við áhugaverða gestafyrirlesara á fundinn til að segja frá sínum verkefnum.
Hægt er að lesa meira um verkefnið á heimasíðu þess: https://www.popculturetourism.eu/

Skráning á fundinn fer fram með því að fylgja hlekknum hér fyrir neðan. Tölvupóstur verður sendur út til þátttakenda með Zoom hlekk fyrir fundinn.

SKRÁNING: https://forms.gle/Sv8QSryi4QydKVXs8

Dagskrá fundarins
09.00  Poppmenningar ferðaþjónusta frá hinum ýmsu hliðum
09.45  Dorothee Lubecki, Bókabæirnir austanfjalls
10.15    Outpace fræðsluefnið kynnt
10.30   Jón Bjarni Guðmundsson, True North
11.00    Dagný Hulda Jóhannsdóttir, Markaðsstofa Suðurlands
11.30    Örlygur Hnefill Örlygsson, Óskarinn til Húsavíkur
12.00   Umræður og lokaorð

OUTPACE verkefnið er tveggja ára samstarfsverkefni (2019-2021) sem fjármagnað er af ESB Erasmus+ styrkjaáætluninni og koma samstarfsaðilar verkefnisins frá menntastofnunum og fyrirtækjum í fimm löndum: Litháen, Bretlandi, Írlandi, Svíþjóð og Íslandi.