Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Allir grunnskólar Reykjanes jarðvangs fengu að gjöf snjallsjónauka til vísindafræðslu

Að frumkvæði Reykjanes jarðvangs hafa allir ellefu grunnskólar á Reykjanesi nú fengið veglegan snjallsjónauka að gjöf; með stuðningi Sævars Helga Bragasonar og styrk frá bæði Kadeco og atNorth gagnaversins. Verkefnið er liður í fræðsluátaki sem tengist almyrkvanum 12. ágúst 2026 og hefur það að markmiði að efla áhuga barna og ungmenna á stjörnufræði, náttúruvísindum og vísindalegum vinnubrögðum.
Afhendingu sjónaukanna er nú lokið og hafa viðtökur skólanna verið afar góðar. Hver skóli fékk einn snjallsjónauka af gerðinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition, sem er sérstaklega hentugur til kennslu og vísindastarfs.
 
Sjónaukarnir bjóða upp á fjölbreytta möguleika til að skoða og rannsaka umhverfið, bæði himingeiminn; sól, tungl og reikistjörnur – en einnig fugla og önnur fyrirbæri í náttúrunni. Sjónaukarnir tengjast snjalltækjum og gera nemendum og kennurum kleift að taka ljósmyndir og myndbönd sem nýta má í kennslu og verkefnavinnu. Með svona snjallsjónaukum fá skólarnir nýtt verkfæri til að efla náttúrufræðikennslu og skapa nemendum öðruvísi tækifæri til að upplifa náttúruna með nýjum hætti.
 
Frá almyrkva til framtíðarfræðslu
 
Fræðsluverkefnið er hluti af þeirri umfangsmiklu vinnu sem fór fram á Reykjanesi í tengslum við almyrkvann í ágúst 2026. Frá upphafi var lögð áhersla á að nýta þennan einstaka náttúruviðburð til að vekja áhuga á vísindum og skapa tækifæri til fræðslu sem myndu nýtast samfélaginu til framtíðar. Reykjanes jarðvangur vann almyrkva fræðsluverkefnið í góðu samstarfi við öll sveitarfélögin á svæðinu, GeoCamp Iceland og mörg önnur fyrirtæki ásamt mjög nánu samstarfi við Sævar Helga Bragason.

„Það er frábært að þessi einstaki og sögulegi atburður sem almyrkvinn var komi til með að hafa áhrif inn í framtíðina. Sjónaukinn og námsefnið henta alveg einstaklega vel til að styðja við kennslu í náttúruvísindum og kveikja áhuga krakka á raungreinum – ekki veitir af! Með honum er ekki aðeins hægt að skoða og gera athuganir á stjörnuhimninum, heldur líka vakta fuglalíf og náttúruna,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari.

Verkefnið varð að veruleika með veglegum fjárhagslegum stuðningi Kadeco og atNorth. Jarðvangurinn lagði einnig til fjármagn og Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari kom að verkefninu með ráðgjöf og öflugum stuðningi.
 
Næsta skref er fræðsla fyrir kennara
 
Þó að sjónaukarnir séu núna komnir til síns heima í grunnskólana er fræðsluverkefninu ekki lokið. Næsta skref er að skipuleggja námskeið fyrir kennara í samstarfi við Sævar Helga Bragason, þar sem farið verður yfir notkun sjónaukanna og möguleika þeirra í kennslu.
 
Markmiðið er að tryggja að sjónaukinn nýtist sem best í daglegu skólastarfi og að sem flestir kennarar hafi þekkingu og sjálfstraust til að nýta hann með nemendum.
Með þessari gjöf vill Reykjanes jarðvangur stuðla að auknu vísindalæsi, meiri forvitni og öflugri áhuga á náttúrunni meðal barna og ungmenna. Um leið er þetta gott dæmi um hvernig samstarf jarðvangsins við skóla, vísindamiðlara og atvinnulíf getur skapað varanleg verðmæti fyrir samfélagið.
 
Fræðsluverkefnið sýnir hvernig einstakur náttúruviðburður á borð við almyrkva getur orðið upphafið að langtímaverkefni sem styrkir menntun og vísindastarf á Reykjanesi.