Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvaverkefninu formlega lokið

Fulltrúar þeirra fjölmörgu aðila sem komu að undirbúningi og framkvæmd almyrkvans 12. ágúst komu saman í forsætisráðuneytinu á dögunum. Þar var litið yfir farinn veg og farið yfir helsta lærdóm verkefnisins.

Þuríður H. Aradóttir Braun frá Markaðsstofu Reykjaness tók þátt í dagskránni og fjallaði um reynslu samstarfsaðila ásamt Sölva Guðmundssyni, forstöðumanni Markaðsstofu Vestfjarða. Í umfjöllun þeirra kom meðal annars fram mikilvægi góðs samstarfs heimamanna, sveitarfélaga og stofnana við undirbúning svo umfangsmikils viðburðar.

Undirbúningur almyrkvans á Reykjanesi kallaði á víðtækt samstarf og samræmda upplýsingagjöf til íbúa og gesta. Sú reynsla sem varð til í verkefninu getur nýst við skipulag og undirbúning annarra stórra viðburða á svæðinu.

Samhliða lokum verkefnisins hefur forsætisráðuneytið gefið út lokaskýrslu um undirbúning stjórnvalda, samhæfingu og framkvæmd almyrkvans. Þar er einnig farið yfir helsta lærdóm og tillögur til framtíðar.

Lokaskýrsluna má lesa á vef Stjórnarráðs Íslands.