Almyrkvi 12. ágúst: Dagskráin á Hvalsnesi
Undanfarið hafa margir spurt okkur í Golunni hvernig verður hjá okkur á Almyrkvanum. Svarið er: Það verður notalegt og gaman saman!!!!!
Eins og þið vitið örugglega er Hvalsnes einn af þeim stöðum á landinu þar sem Almyrkvinn varir hvað lengst. Hvalsnes er opið öllum sem þangað vilja koma á þessum degi og njóta þessa mikla náttúruundurs í samfélagi við aðra.
Hópar erlendra ferðamanna verða á Golunni þennan dag og hafa húsið fyrir sig. Hins vegar mun Goluliðið sjá um veitingar sem hægt verður að versla í tjöldum á Hvalsnestúninu. T.d. Pastasalat, súpa, pylsur, kökur, súkkulaði, kakó og kaffi.
Svavar Knútur verður með þrenna tónleika þennan dag í Hvalsneskirkju.
Staðarleiðsögn bæði á ensku og íslensku.
Aðstöðugjald 2.000.- frítt fyrir börn 17 ára og yngri.
Tónleikar 3.500.-
Staðarleiðsögn 1000.- frítt fyrir börn 17 ára og yngri.
Svo er að sjálfsögðu hægt að skella sér í fjöruferð og leika sér á túnunum.
Við bendum öllum á sem ætla sér að koma til okkar að koma snemma, vera vel útbúin til útiveru og það er sniðugt að hafa teppi með sér til að tylla sér á túnið.
Einstefna verður á veginum til okkar frá Höfnum til Sandgerðis (sjá kort).
Við hlökkum til að sjá ykkur og vera með ykkur á þessu augnabliki þegar jörðin heldur í sér andanum.
Ef þið hafið einhverjar spurningar hikið þá ekki við að hafa samband.
Kveðja,
Goluliðið