Almyrkvi 12. ágúst: safnstaðir og útsýnisstaðir
Hvar sem þú velur að upplifa almyrkvann á Reykjanesskaga 12. ágúst verður um einstaka stund að ræða. Það eru fjölmargir skilgreindir safnstaðir í þéttbýli og útsýnisstaðir á náttúrusvæðum á svæðinu þar sem hægt er að upplifa almyrkvann í ólíku umhverfi.
Þar sem búast má við miklum fjölda gesta er mikilvægt að skipuleggja ferðina fyrirfram, kynna sér aðstæður á áfangastað og velja stað sem hentar þínum þörfum.
Safnstaðir í þéttbýli
Það hafa verið skilgreindir safnstaðir í þéttbýli á Reykjanesskaga þar sem gestir geta komið saman og upplifað almyrkvann með aðgengi að mikilvægri þjónustu.
Á safnstöðum er almennt betra aðgengi að bílastæðum, salernum, þjónustu og öðrum innviðum en á afskekktari náttúrusvæðum. Þeir henta því sérstaklega vel þeim sem vilja hafa aðgengi að þjónustu í nágrenninu eða kjósa að upplifa almyrkvann í öruggara og aðgengilegra umhverfi.
Meðal skilgreindra safnstaða eru staðir í Suðurnesjabæ, Reykjanesbæ, Vogunum og Grindavík. Sjá safnstaði í þéttbýli hér.
Útsýnisstaðir á náttúrusvæðum
Fyrir þá sem vilja upplifa almyrkvann í náttúrulegu umhverfi eru fjölmargir útsýnisstaðir víðs vegar um Reykjanesskagann.
Meðal þeirra eru Garðskagi, Hvalsneskirkja, Hafnarberg, Brúin á milli heimsálfa, Gunnuhver, Reykjanesviti, Fagradalsfjall, Kálfatjörn og Brimketill. Sjá útsýnisstaði á náttúrusvæðum hér.
Aðstæður eru mismunandi eftir stöðum og því er mikilvægt að kynna sér aðgengi, bílastæði, salernisaðstöðu og aðra þjónustu áður en lagt er af stað. Á sumum náttúrusvæðum er þjónusta takmörkuð og farsímasamband getur verið ótryggt.
Hvað ef það verður skýjað?
Almyrkvinn er ekki aðeins sjónarspil á himninum. Við almyrkva verður skyndilega dimmt á miðjum degi og andrúmsloftið breytist á örskotsstundu. Jafnvel þótt ský hylji sólina getur sjálft myrkrið og breytingin á umhverfinu orðið ógleymanleg upplifun.
Sævar Helgi Bragason fjallar nánar um þetta á heimasíðu sinni Sólmyrkvi 2026, meðal annars um hvernig almyrkvinn getur verið einstök upplifun þótt ský séu á himni.
Hvað gerist ef það verður skýjað í sólmyrkvanum? – Sólmyrkvi 2026
Veldu þinn stað
Hvort sem þú velur að upplifa almyrkvann í þéttbýli með góðu aðgengi að þjónustu eða úti í náttúrunni með útsýni yfir landslag Reykjanesskagans, er mikilvægt að vera vel undirbúin.
Mætið snemma, gerið ráð fyrir auknum ferðatíma og leggðu aðeins á merktum eða þar til gerðum bílastæðum. Ekki stöðva í vegköntum og fylgið ávallt merkingum og leiðbeiningum á svæðinu.
Skoðaðu hér safnstaði og útsýnisstaði.
Skoðaðu kortið hér að neðan til að sjá aðgengi og þjónustu og kynna þér nákvæma tímasetningu almyrkvans á hverjum stað.