Almyrkvi 2026 á Reykjanesi – Hvar finn ég upplýsingarnar?
Það fer að styttast í almyrkvann þann 12. ágúst og undirbúningur er nú á lokametrunum. Fjölmargar upplýsingar eru þegar aðgengilegar á vefnum og nýtt efni bætist við nær atburðinum. Til að auðvelda undirbúning höfum við tekið saman helstu upplýsingaveitur fyrir ferðaþjónustuaðila, fyrirtæki og aðra sem taka á móti gestum á Reykjanesi.
Skoðaðu upplýsingarnar hér að neðan og finndu samantekt á hlekki neðst í fréttinni.
Frétt á ensku hér.
Visit Reykjanes
Á upplýsingasíðu Visit Reykjanes má finna allt sem snýr að undirbúningi á Reykjanesi, meðal annars:
- Útsýnisstaði og áfangastaði
- Umferðarstýringu og lokanir
- Öryggisupplýsingar
- Þjónustu á svæðinu
- Upplýsingar fyrir íbúa og gesti
- Tengla á aðrar upplýsingasíður
Þessi síða verður uppfærð reglulega fram að almyrkvanum.
Fræðsla um almyrkvann
Á vefjum Sævars Helga má finna allar upplýsingar um sjálfan almyrkvann.
Þar er meðal annars að finna:
- Gagnvirk kort
- Tímasetningar
- Hvar almyrkvinn sést best
- Öryggisleiðbeiningar
- Upplýsingar um sólmyrkvagleraugu
- Ráð fyrir ljósmyndun
- Fræðsluefni
Upplýsingar á landsvísu
Á island.is verða birtar samræmdar upplýsingar frá stjórnvöldum um ferðalög, öryggi, umferð, viðbragðsáætlanir og mikilvægar tilkynningar.
Umferð og lokanir
Á næstu dögum verða birtar endanlegar upplýsingar um:
- Einstefnur
- Lokanir
- Aðgengi að vinsælum svæðum
- Bílastæði
- Umferðarstýringu
Við hvetjum alla til að fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni áður en lagt er af stað. Athugið að vegurinn að Keili verður lokaður en það birtist ekki á vef Vegagerðarinnar.
Leggið af stað tímanlega
Búast má við mikilli umferð síðdegis 12. ágúst. Við mælum með að gestir komi á sinn áfangastað með góðum fyrirvara og geri ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega.
Sveitarfélögin
Sveitarfélög á Reykjanesi munu birta upplýsingar um:
- Viðburði
- Þjónustu
- Söfnunarstaði
- Staðbundna umferðarstýringu
- Opnunartíma
- Upplýsingar fyrir íbúa
- Lengd myrkva í hverju sveitarfélagi
Fréttir og umfjöllun af Reykjanesi
Víkurfréttir hafa fylgst náið með undirbúningi vegna almyrkvans á Reykjanesi undanfarna mánuði og birt fjölmargar fréttir, viðtöl og umfjöllun um verkefnið. Þar má meðal annars finna upplýsingar um undirbúning sveitarfélaga, viðbragðsaðila, ferðaþjónustunnar, viðburði og önnur málefni sem tengjast almyrkvanum.
Við hvetjum alla sem vilja fylgjast með því sem er að gerast á Reykjanesi að fylgjast með umfjöllun Víkurfrétta á vf.is.

Það sem gott er að undirbúa núna
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila til að yfirfara sinn undirbúning og kynna sér sérstaklega:
- Sólmyrkvagleraugu fyrir starfsfólk og gesti
- Sólarsíur fyrir myndavélar og síma
- Umferðarstýringu og lokanir
- Bílastæði og möguleg þjónustu- eða bílastæðagjöld
- Viðburði og dagskrá á svæðinu
- Opnunartíma fyrirtækja
- Salernisaðstöðu
- Mat og veitingar
- Öryggisleiðbeiningar fyrir gesti
- Hvernig best er að upplýsa gesti um að njóta almyrkvans á öruggan hátt
Hjálpumst að
Almyrkvinn er einstakur náttúruatburður sem verður sýnilegur um allan Reykjanesskagann. Með góðum undirbúningi, samræmdri upplýsingagjöf og góðri samvinnu getum við skapað örugga og eftirminnilega upplifun fyrir íbúa og gesti.
Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila til að fylgjast reglulega með upplýsingasíðunum og uppfæra sitt eigið efni eftir því sem nýjar upplýsingar verða birtar.
Helstu upplýsingasíður:
Visit Reykjanes – upplýsingar um Reykjanes, áfangastaði, þjónustu og umferð.
Sólmyrkvi 2026 / Eclipse 2026 – fræðsla um almyrkvann, kort, tímasetningar og öryggi.
island.is – opinberar upplýsingar stjórnvalda.
Vegagerðin / Umferðin – umferð, lokanir og aðstæður á vegum. Ath. Að vegurinn að Keili verður lokaður. Kemur ekki fram á umferdin.is.
Sveitarfélögin - upplýsingar um viðburði, þjónustu og staðbundið skipulag.