Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvi 2026 á Reykjanesi: Samvinna sem skilaði árangri

Þann 12. ágúst 2026 varð Reykjanes vettvangur eins merkasta náttúruviðburðar sem Ísland hefur upplifað í áratugi. Almyrkvi á sólu dró þúsundir gesta á svæðið og vakti athygli um allan heim. Þrátt fyrir skýjahulu sem skyggði á atburðinn þá upplifðu íbúar og gestir magnað myrkur í rúma mínútu. Þegar horft er til baka stendur þó eitt upp úr, sá árangur sem náðist var ekki tilviljun. Hann var afrakstur rúmlega árs undirbúnings og einstaks samstarfs fjölda fólks sem lagði verkefninu lið.

Almyrkvinn 2026 var ekki aðeins einstakur náttúruviðburður – hann er eitt stærsta sameiginlega samfélagsverkefni sem unnið hefur verið að á Reykjanesi.

Frá því undirbúningur hófst vorið 2025 var markmiðið skýrt: að tryggja öryggi íbúa og gesta, skapa jákvæða upplifun og nýta tækifærið til að kynna Reykjanes sem áfangastað. Fljótlega varð ljóst að verkefnið yrði mun stærra en hefðbundið ferðaþjónustuverkefni. Það þróaðist yfir í samfélagsverkefni þar sem sveitarfélög, ríkisaðilar, viðbragðsaðilar, atvinnulíf og íbúar unnu saman að sameiginlegu markmiði.

Á þessum 15 mánuðum voru haldnir reglulegir stýrihópsfundir, fjölmargir vinnu- og samráðsfundir og ótal kynningar fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðaþjónustuna. Yfir 100 einstaklingar komu beint að undirbúningnum og á bak við þá stóð enn stærri hópur starfsfólks, fyrirtækja og sjálfboðaliða sem vann að einstökum verkefnum.

Fræðslan var stór þáttur verkefnisins. Allir ellefu grunnskólar á Suðurnesjum tóku þátt í fræðsluverkefni um sólmyrkva og stjörnufræði. Skólarnir fengu ellefu sólar- og stjörnusjónauka með sólarsíum, 5.700 sólmyrkvagleraugu voru afhent grunnskólabörnum og viðbragðsaðilum og sjö stór sólmyrkvagleraugu voru sett upp á safn- og áningarstöðum í sveitarfélögunum þannig að sem flestir gætu notið viðburðarins á öruggan hátt.

Samhliða þessu var unnið að umfangsmikilli kortlagningu á útsýnisstöðum, bílastæðum, þjónustu, salernisaðstöðu, lokunum og umferðarstýringu. Tvær upplýsingasíður voru settar upp á Visit Reykjanes, á íslensku og ensku, auk þess sem öll sveitarfélögin héldu úti eigin upplýsingasíðum og Facebook-viðburðum. Upplýsingagjöf var unnin í nánu samstarfi við island.is, ráðuneyti, Ferðamálastofu, Íslandsstofu, Sævar Helga Bragason, Vegagerðina, Víkurfréttir og fjölmarga aðra samstarfsaðila.

Einn mikilvægasti þáttur verkefnisins var öryggis- og viðbragðsvinnan. Almannavarnafulltrúi Lögreglustjórans á Suðurnesjum leiddi sérstakan öryggisvinnuhóp þar sem lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar unnu saman að því að tryggja öryggi allra sem voru á svæðinu. Á sjálfum almyrkvadeginum voru um 130-140 viðbragðsaðilar á vakt víðs vegar um Reykjanesskagann og lögðu sitt af mörkum til að dagurinn færi fram með öruggum og skipulögðum hætti.

Verkefnið byggir á samvinnu opinberra aðila, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og íbúa með það sameiginlega markmið að skapa örugga, vel skipulagða og eftirminnilega upplifun fyrir bæði íbúa og gesti sem heimsækja Reykjanes í tilefni almyrkvans.

Þegar dagurinn rann upp sáum við afrakstur þessarar vinnu. Gestir dreifðust vel um svæðið, upplýsingaflæði gekk vel, samstarf milli aðila var öflugt og viðbragðskerfið reyndist sterkt. Þó að álagið væri mikið sýndi samfélagið á Reykjanesi hvers það er megnugt þegar allir leggjast á eitt.

Við viljum nota þetta tækifæri til að færa öllum sem komu að verkefninu okkar bestu þakkir.

Við þökkum sveitarfélögunum fjórum á Reykjanesi fyrir öflugt samstarf og framsýni. Við þökkum starfsfólki þeirra sem vann ótal verkefni á bak við tjöldin, allt frá skipulagi og upplýsingamiðlun til framkvæmda og þjónustu.

Við þökkum lögreglu, almannavörnum, björgunarsveitum, slökkviliðum, HSS, Vegagerðinni, Náttúruverndarstofnun, HS Orku, ISAVIA og öllum öðrum viðbragðsaðilum sem tryggðu öryggi svæðisins.

Við þökkum Reykjanes UNESCO Global Geopark, Geocamp Iceland og Sævari Helga Bragasyni fyrir ómetanlegt framlag til fræðslu og miðlunar.

Við þökkum ferðaþjónustunni, fyrirtækjum, veitingastöðum, söfnum, félagasamtökum, landeigendum og öllum þeim sem tóku þátt í að taka á móti gestum og skapa einstaka upplifun.

Við þökkum einnig fjölmiðlum, ekki síst Víkurfréttum, sem fylgdu verkefninu eftir af miklum metnaði frá upphafi og miðluðu upplýsingum reglulega til íbúa og gesta.

Og síðast en ekki síst viljum við þakka íbúum Reykjaness fyrir þolinmæðina, skilninginn, hugmyndirnar, þátttökuna og þann jákvæða hug sem einkenndi samfélagið allt á meðan undirbúningurinn stóð yfir.

Almyrkvi 2026 verður lengi í minnum hafður. Ekki aðeins vegna hins einstaka náttúruviðburðar heldur vegna þess hvernig samfélagið á Reykjanesi sameinaðist um að gera hann að öruggri og eftirminnilegri upplifun fyrir alla.

Það er árangur sem við getum öll verið stolt af.

Þuríður H. Aradóttir Braun
Forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness / verkefnisstjóri Almyrkva á Reykjanesi 2026

Arnar Steinn Elísson
Almannavarnafulltrúi Lögreglustjórans á Suðurnesjum og ábyrgðarmaður öryggisvinnuhóps Almyrkva 2026