Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Undirbúningur hafinn: atNorth og Kadeco styrkja almyrkvaverkefni á Reykjanesi

Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu þann 12. ágúst 2026 er kominn af stað á Reykjanesi, þar sem metnaðarfullt fræðsluverkefni fyrir skóla og samfélag er farið að taka á sig mynd. Fyrirtækin atNorth og Kadeco hafa nú bæst í hóp styrktaraðila og leggja sitt af mörkum með því að gefa stjörnusjónauka til grunnskóla á Suðurnesjum.

Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu þann 12. ágúst 2026 er hafinn á Reykjanesi og fyrstu skref í umfangsmiklu fræðsluverkefni fyrir skóla og samfélag eru nú farin að taka á sig mynd.

Fyrirtækin atNorth og Kadeco, sem bæði starfa á Suðurnesjum, hafa bæst í hóp styrktaraðila verkefnisins. atNorth er alþjóðlegt gagnaversfyrirtæki með áherslu á sjálfbærar lausnir og Kadeco er þróunarfélag sem leiðir uppbyggingu og atvinnuþróun á svæðinu í kringum Keflavíkurflugvöll. Fyrirtækin hafa ákveðið að leggja sitt af mörkum með því að gefa grunnskólum á Suðurnesjum stjörnusjónauka með sólarsíu. Hvort fyrirtæki gefur fjóra sjónauka að andvirði um 50.000 krónur hver sjónauki.

„Okkur er sönn ánægja að leggja þessu skemmtilega verkefni lið. Almyrkvinn sem hér sést verður bæði stórkostleg upplifun og um leið tækifæri til að efla áhuga nemenda á rannsóknum og vísindum. Stjörnusjónaukarnir koma svo til með að nýtast áfram í öflugu kennslustarfi sem skilar ungmennum vel menntuðum og undirbúnum út í atvinnulífið. Það er allra hagur,“ segir Mardís Heimisdóttir, forstöðukona stefnu hjá atNorth.

„Við hjá Kadeco erum stolt af því að styðja þetta verkefni. Almyrkvi á sólu er einstakur náttúruviðburður sem vekur bæði undrun og áhuga á vísindum, og við teljum mikilvægt að skapa aðstæður til að sem flest geti notið hans og lært af honum,“ segir Pálmi Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Framlagið er hluti af stærra fræðsluverkefni sem Reykjanes UNESCO Global Geopark heldur utan um í samstarfi við GeoCamp Iceland, sveitarfélögin á Suðurnesjum, Markaðsstofu Reykjaness og vísindamiðlarann Sævar Helga Bragason. Markmið verkefnisins er að efla fræðslu um almyrkva, tryggja öryggi og ánægjulega upplifun og nýta þetta einstaka tækifæri til að vekja áhuga barna og ungmenna á vísindum og náttúru.

„Við erum afar þakklát fyrir þennan stuðning og ánægjulegt að sjá fyrirtæki á svæðinu taka virkan þátt í verkefninu. Almyrkvinn er svo stórkostlegt tækifæri til að efla áhuga á vísindum, og því er stuðningur fyrirtækja mjög mikilvægt framlag til fræðslu og samfélagsins í heild,“ segir Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi.

Stjörnusjónaukarnir munu nýtast bæði við undirbúning fyrir almyrkvann og til framtíðar sem kennslutæki í náttúrufræðum, þar sem nemendur geta fylgst með sólinni, tunglinu og stjörnuhimninum á öruggan hátt.

Undirbúningur heldur áfram á næstu misserum og er vonast til að fleiri fyrirtæki og samstarfsaðilar taki þátt í verkefninu og styðji við fræðslu og upplifun í tengslum við þennan einstaka náttúruviðburð.

Stjörnusjónaukar sem afhentir verða grunnskólum á Suðurnesjum munu nýtast bæði í undirbúningi fyrir almyrkva 2026 og í náttúrufræðikennslu til framtíðar.