Almyrkvi 2026 – Þriðji kynningarfundur 10.júní á Teams
Ferðaþjónustuaðilar hvattir til að taka þátt í upplýsingafundi um almyrkvann 2026
Þann 12. ágúst 2026 verður sögulegur viðburður þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Reiknað er með að tugir þúsunda gesta heimsæki landið til að upplifa myrkvann og er Reykjanesskagi meðal þeirra staða þar sem bestu aðstæður verða til að sjá almyrkvann í heild sinni.
Til að styðja við undirbúning ferðaþjónustunnar og annarra hagaðila stendur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fyrir þriðja upplýsingafundinum um almyrkvann miðvikudaginn 10. júní kl. 13:00–14:15 á Teams.
Mikilvægt fyrir ferðaþjónustu og sveitarfélög
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem snúa að undirbúningi vegna aukins fjölda gesta, umferðar, öryggismála og upplýsingagjafar. Ferðaþjónustuaðilar eru sérstaklega hvattir til að taka þátt, auk starfsfólks sveitarfélaga, hafna, áhaldahúsa, markaðs- og kynningardeilda og ferðamálafulltrúa.
Markmið fundarins er að tryggja að allir sem koma að móttöku gesta séu vel undirbúnir fyrir einn stærsta viðburð sem Ísland hefur staðið frammi fyrir á sviði ferðamála á undanförnum árum.
Dagskrá fundarins
- Setning fundar – Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
- Kynning á almyrkvanum – Sævar Helgi Bragason (Stjörnu-Sævar)
- Kynning á upplýsingavef stjórnvalda um almyrkvann 2026
Fundurinn verður tekinn upp og verður aðgengilegur þeim sem ekki eiga heimangengt.
Reykjanes í lykilhlutverki
Reykjanesskagi verður eitt af eftirsóttustu svæðum landsins á myrkvadeginum þar sem þar mun sjást 100% hyljun sólar. Búast má við miklum fjölda gesta á svæðinu og því mikilvægt að fyrirtæki, sveitarfélög og þjónustuaðilar séu vel undirbúin.
Almyrkvinn hefst síðdegis 12. ágúst og nær hámarki um klukkan 17:30. Eftir þennan myrkva munu líða um 170 ár þar til sambærilegur almyrkvi verður aftur sýnilegur frá Íslandi.
Upplýsingar fyrir íbúa og gesti
Upplýsingavefurinn um almyrkvann, solmyrkvi2026.is, hefur verið opnaður og þar má finna upplýsingar um tímasetningar, áhorfsstaði, öryggisráðleggingar, umferðarmál og fleira sem tengist viðburðinum.
Taktu þátt í fundinum
Miðvikudagurinn 10. júní 2026
Kl. 13:00–14:15
Microsoft Teams
Meeting ID: 329 044 370 174 31
Passcode: Va25qU2d
Spurningar:
Sökum fjölda fólks á fundinum verður ekki boðið upp á spurningar á þessum kynningarfundi en þeir sem hafa spurningar tengdar ferðaþjónustu bendum við á:
Ferðamálastofu á oryggi@ferdamalastofa.is
Markaðsstofa Reykjaness á info@visitreykjanes.is
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins á hallo@reykjavikandpartners.is
Markaðsstofa Vesturlands á info@west.is
Markaðsstofa Vestfjarða á travel@westfjords.is
Ef aðrar spurningar vakna eða ábendingar er velkomið að senda á thorny@almannavarnir.is og þeim verður komið í farveg eftir atvikum.