Almyrkvi 12. ágúst: Gjaldskyld bílastæði á Reykjanesi
10.08.2026
Þann 12. ágúst, þegar almyrkvi á sólu gengur yfir Reykjanes, er gert ráð fyrir miklum fjölda fólks á svæðinu. Til að auðvelda gestum að skipuleggja daginn er mikilvægt að hafa í huga að bílastæðagjöld eru á nokkrum af þeim stöðum sem eru vinsælir til að fylgjast með almyrkvanum.
Hér má sjá helstu gjaldskyldu bílastæðin:
Vogar
- Kálfatjörn – Gjaldskylt bílastæði. Salernisaðstaða og drykkjarvatn eru á staðnum.
Grindavík
- Fagradalsfjall P1–P4 – Um 1.200 bílastæði.
Suðurnesjabær
- Garðskagi / Skagabraut – Tvö bílastæðasvæði með um 1.200 stæðum samtals. Salernisaðstaða er á svæðinu.
- Víðisvöllur – Um 100 bílastæði.
- Hvalsnes
- Keflavíkurflugvöllur
Reykjanesbær
- Reykjanesviti
Við hvetjum fólk til að kynna sér fyrirfram hvar hægt er að leggja og gera ráð fyrir bílastæðagjöldum þegar ferðin er skipulögð. Mikill fjöldi gesta er væntanlegur á Reykjanes og því er gott að vera vel undirbúin.
Nánari upplýsingar um almyrkvann, bílastæði, umferð, safnstaði, viðburði og annað skipulag má finna hér.