Almyrkvi í Suðurnesjabæ – kynningarfundur
Undirbúningur fyrir almyrkvann 12. ágúst er hafinn og mikilvægt er að tryggja gott samtal og samvinnu á svæðinu. Af því tilefni er boðað til kynningar- og umræðufundar fyrir hagsmunaaðila í Suðurnesjabæ.
12.02.2026
Suðurnesjabær, í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og samstarfshóp svæðisins um almyrkvann, býður hagsmunaaðilum í sveitarfélaginu til kynningar- og umræðufundar um almyrkvann sem verður 12. ágúst næstkomandi. Fundurinn fer fram 13. febrúar kl. 10:00–11:30.
Dagskrá:
- Kynning frá Sævari Helga Bragasyni um atburðinn
- Verkefni á landsvísu, áfangastaðarins Reykjaness og Suðurnesjabæjar. Innlegg frá fulltrúum Markaðsstofu Reykjaness, Suðurnesjabæjar, Reykjanes jarðvangs og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
- Útsýnisstaðir og þjónusta
- Umferðarskipulag, lokanir og viðbragð
- Fræðslu- og kynningarmál
- Umræður í lok fundar
Fundurinn verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Markmið með fundinum er að upplýsa um þau verkefni sem farin eru af stað en ekki síður til að koma á samtali og samvinnu á svæðinu þannig að upplifunin verði góð fyrir alla.
Athygli er vakin á því að sambærilegir fundir verða haldnir í öðrum sveitarfélögum.