Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvi – kynningarfundur Almannavarna

Almannavarnir boða til kynningarfundar á TEAMS mánudaginn 13. apríl nk. kl. 11-12.

Fundurinn er ætlaður ferðaþjónustuaðilum. Fundarefnið eru fyrirhugaðar ráðstafanir vegna almyrkvans á vesturhluta landsins þann 12. ágúst 2026. Hann er sá fyrsti í röðinni en fleiri slíkir upplýsingafundir eru áætlaðir, eftir því sem nær dregur þessum einstaka viðburði.

Dagskrá:

Verkefnið - nálgun stjórnvalda - sviðsábyrgðarreglan

Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

Kynning á upplýsingasíðu vegna almyrkvans

Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu.

Upplýsingar um lokanir - staðan í dag

Vegagerðin

Umferðaskipulag

Stuttar kynningar frá lögregluembættum um undirbúning umferðarskipulags.

Náttúruverndarstofnun - Friðlýst svæði og umgengi

Inga Dóra Hrólfsdóttir sviðsstjóri Landvörslusviðs.

Spurningar:

Sökum fjölda fólks á fundinum verður ekki boðið upp á spurningar á þessum kynningarfundi en þeir sem hafa spurningar tengdar ferðaþjónustu bendum við á:

Ef aðrar spurningar vakna eða ábendingar er velkomið að senda á thorny@almannavarnir.is og þeim verður komið í farveg eftir atvikum.

Fundur þessi verður tekinn upp af AVD.

Hlekkur á teams fundinn.