Appelsínugul veðurviðvörun og óvissa í Grindavík
Dagsetning: 25.03.2025
Frá: Lögreglustjóranum á Suðurnesjum
Veðurstofan hefur gefið út gula og svo appelsínugula viðvörun fyrir Reykjanes vegna slæmrar veðurspár frá kl 05-13 á morgun 26.03.2026. Gert er ráð fyrir hríðarveðri slæmu skyggni og snjókomu, einkum á Reykjanesi með tilheyrandi ófærð sem getur fylgt. Eftir það verður slydda og í kjölfarið rigning en veður gengur niður eftir hádegið á morgun.
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast náið með veður- og færð á vef Vegagerðarinnar umferdin.is og á vef Veðurstofu Íslands vedur.is áður en lagt er af stað og gefa sér ríflegan tíma í ferðalög. Eins eru farþegar á leið til Keflavíkurflugvallar beðnir um að fylgjast með flugáætlun flugfélaganna á vefsíðu þeirra.
Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum í skóla og leikskóla.
Vanbúnir bílar eiga ekki að fara af stað.
Tryggja þarf að ökutæki séu vel útbúin vetrarhjólbörðum, nægu eldsneyti og tilbúnir í vetrarfærð á vegum á svæðinu og ekki leggja af stað af óþörfu.
Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík
Áframhaldandi óvissa með landris og jarðhræringar halda áfram á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi.
Viðbragðsaðilar funduðu í morgun til að meta aðstæður í Grindavík sökum veðurs og verður viðbragð aukið meðan óvissa með veður er til staðar. Vakt slökkviliðs verður til staðar ásamt björgunarsveit og þá hefur verður aðgerðastjórn lögreglu virkjuð í fyrramálið.
Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt til að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara.
Fyrirtækjaeigendur í Grindavík eru einnig beðnir um að hafa í huga að fresta komu starfsfólks þangað til að veður gengur niður og færð sé í lagi.
Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Lögreglunni á þeirra miðlum.
Samantekt:
- Gul viðvörun tekur gildi kl 05 með hríðarveðri
- Appelsínugul viðvörun tekur gildi kl 07 – fylgstu með veður- og færð áður en lagt er af stað
- Farðu ekki af stað á vanbúnum bílum.
- Hafðu hlý föt, mat og drykk í bílnum ef tafir verða
- Gefðu þér góðan tíma í ferðalög.
- Í Grindavík gæti komið til að flóttaleiðir lokist með stuttum fyrirvara
- Fylgstu vel með opinberum tilkynningum á helstu síðum