Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvi 12. ágúst: Bandarískir nemendur senda háloftabelgi á loft í almyrkva á Reykjanesinu

Í tengslum við almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst mun hópur nemenda og kennara úr vísindaklúbbi Hanover High School í New Hampshire í Bandaríkjunum senda tvo rannsóknarháloftabelgi á loft frá Reykjanesi. Verkefnið er hluti af vettvangsnámi nemendanna á Íslandi og er unnið í samstarfi við GeoCamp Iceland og Reykjanes UNESCO Global Geopark.
 
Undir leiðsögn Kevin Lavigne, náttúrufræðikennara og forsprakka vísindaklúbbs skólans, munu nemendur á aldrinum 15–17 ára rannsaka hvernig almyrkvinn hefur áhrif á lofthjúpinn og umhverfið. Háloftabelgirnir verða búnir fjölbreyttum mælitækjum sem safna gögnum um meðal annars hitastig, loftþrýsting, birtustig og aðrar breytingar sem verða meðan myrkvinn stendur yfir.
 
Hanover High School hefur um árabil byggt upp öflugt rannsóknarstarf þar sem nemendur hanna og þróa eigin mælitæki og framkvæma raunverulegar vísindarannsóknir. Verkefnið á Íslandi gefur þeim einstakt tækifæri til að rannsaka eitt merkilegasta náttúrufyrirbæri ársins við kjöraðstæður á Reykjanesi. Nánar má lesa um verkefnið á heimasíðu GeoCamp Iceland hér.
 
Vísindi, náttúra og listir mætast í almyrkvanum
 
Á sama tíma verður einnig framkvæmd sérstök rannsókn á hegðun fugla meðan á almyrkvanum stendur. Stefnt er að því að taka upp hljóð við fuglabjörg á Reykjanesi til að kanna hvort breytingar verði á hegðun fugla þegar birtuskilyrði breytast skyndilega.
 
Jafnframt mun Elizabeth McTernan, prófessor við Háskólann í Iowa, senda upp sérstakan háloftabelg þar sem ferðalag belgsins um lofthjúpinn verður umbreytt í hljóðverk. Verkefnið sameinar vísindi, gögn og listsköpun og sýnir hvernig nýta má vísindalegar mælingar á skapandi hátt. McTernan hefur um árabil unnið á mörkum lista og vísinda og meðal annars starfað með íslensk-danska listamanninum Ólafi Elíassyni.
 
GeoCamp Iceland leggur ríka áherslu á vettvangsnám, vísindalæsi og alþjóðlegt samstarf í náttúruvísindum. Þessi verkefni í tengslum við almyrkjvann eru gott dæmi um hvernig nemendur geta tekið þátt í raunverulegum rannsóknum þar sem þeir vinna með vísindamönnum og kennurum að gagnasöfnun og miðlun þekkingar.
 
Kennurum og almenningi boðið að fylgjast með
 
Kennurum, nemendum og öllum sem hafa áhuga á vísindum og vísindamiðlun er boðið að fylgjast með undirbúningi og framkvæmd þegar veðurblöðrunum verður sleppt. Nemendur og kennarar frá Hanover High School munu kynna verkefnið á vettvangi og svara spurningum gesta. Jafnframt er stefnt að því að bjóða síðar á árinu til kynningar fyrir íslenska grunn- og framhaldsskóla um verkefnið og hvernig sambærilegar rannsóknir með háloftabelgjum geta orðið hluti af kennslu hér á landi.
 
Vegna veðurskilyrða og þess að mikilvægt er að geta endurheimt rannsóknarbúnaðinn verður endanleg staðsetning uppsendingarinnar ákveðin eigi síðar en 10. ágúst. Þá verða nánari upplýsingar um stað og tíma sendar fjölmiðlum og birtar á miðlum GeoCamp Iceland.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Jón Arnbjörnsson
GeoCamp Iceland
Sími: 8946046