Beyond Sustainability – The Future of Tourism
Opið alþjóðlegt vefnámskeið um nærandi ferðaþjónustu 29. september
Hvað felst í nærandi ferðaþjónustu í raun og veru – og hvernig getur ferðaþjónusta haft jákvæð áhrif á staði, samfélög, fyrirtæki og vistkerfi?
Þriðjudaginn 29. september 2026 kl. 11:00–13:00 að íslenskum tíma stendur REGENERATE verkefnið fyrir opnu alþjóðlegu vefnámskeiði undir yfirskriftinni Beyond Sustainability – The Future of Tourism.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynnast betur hugmyndafræði nærandi ferðaþjónustu og sjá hvernig henni er beitt í framkvæmd. Fjallað verður um grunnþætti nærandi ferðaþjónustu og kynnt dæmi og reynsla frá Finnlandi, Svíþjóð, Írlandi og Íslandi.
REGENERATE verkefnið vinnur að því að efla þekkingu og getu ferðaþjónustunnar og opinberra aðila til að innleiða nálgun þar sem ferðaþjónusta leitast ekki aðeins við að draga úr neikvæðum áhrifum, heldur stuðla með markvissum hætti að náttúru, samfélögum, menningu og staðbundinni verðmætasköpun. Verkefnið er unnið í samstarfi aðila á Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Írlandi.
Dagskrá
- Foundations of Regenerative Tourism
Tarja Kupiainen, Principal Lecturer, Karelia University of Applied Sciences, Finland - Regenerative Actions in Tourism and Entrepreneurship
Annu Huotari, Hawkhill, Finland - Leading the Shift: Creating the Conditions for Regenerative Approaches
Tina O'Dwyer, Founder and CEO of The Tourism Space, Ireland - Regenerative Place Development Through Cross-Sector Partnership
Marino Carlsson, Destination Developer at Gold of Lapland, Sweden - Building a Shared Path for Regenerative Tourism
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Íslenski ferðaklasinn
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Vefnámskeiðið fer fram á ensku og er öllum opið án endurgjalds. Viðburðurinn verður tekinn upp og fá skráðir þátttakendur aðgang að upptökunni og eftirfylgniefni að námskeiði loknu. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig fyrirfram til að fá fundarhlekk og allar nánari upplýsingar.
Dagsetning: 29. september 2026
Tími: 11:00–13:00 að íslenskum tíma
Staðsetning: á veraldarvefnum
Þátttaka: án endurgjalds
Skráning á vefnámskeiðið
REGENERATE er styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic Programme og er Visit Reykjanes leiðandi aðili verkefnisins. Verkefnið miðar að því að efla getu og samstarf um nærandi ferðaþjónustu og styðja þannig við seiglu samfélaga og varðveislu náttúru- og menningararfs á norðurslóðum.
