Eldfjallaleiðin hlýtur styrk til áframhaldandi þróunar og markaðssetningar
Eldfjallaleiðin hefur hlotið styrk úr byggðaáætlun stjórnvalda sem ætlaður er til áframhaldandi þróunar, miðlunar og markaðssetningar verkefnisins. Verkefnið er samstarf Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands og miðar að því að miðla þekkingu um eldvirkni og áhrif hennar á náttúru og samfélög, um leið og skapa ný og virðisaukandi tækifæri í ferðaþjónustu.
Styrkurinn nemur 4,5 milljónum króna og verður nýttur til að efla samræmda framsetningu Eldfjallaleiðarinnar, þróa miðlunarefni og styðja ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög við að byggja upp aðlaðandi og fræðandi upplifun fyrir gesti.
Eldfjallaleiðin er ferðaleið sem þróuð hefur verið í nánu samstarfi við íbúa, ferðaþjónustuaðila og hagaðila á svæðinu. Leiðin tengir saman svæði sem mótast hafa af eldvirkni og gefur gestum tækifæri til að upplifa einstakt landslag, skilja jarðfræðilega sögu svæðisins og kynnast áhrifum náttúruafla á samfélögin sem þar hafa þróast.
Verkefnið er mikilvægt framlag til áframhaldandi þróunar Reykjaness sem áfangastaðar og styður við markmið um sjálfbæra ferðaþjónustu, aukna þekkingarmiðlun og sterkari upplifun gesta. Með markvissri uppbyggingu og samræmdri miðlun styrkir Eldfjallaleiðin stöðu svæðisins sem einstakan áfangastað þar sem kraftar náttúrunnar og saga samfélaga mætast.
Styrkurinn er hluti af úthlutun Innviðaráðuneytisins á grundvelli byggðaáætlunar, sem miðar að því að efla byggðir landsins, styðja nýsköpun og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar.