Endurmenntunarferð kennara til Danmerkur styrkir sjálfbærni- og útikennslu í UNESCO skólum
Dagana 15.–19. mars tók níu manna hópur kennara af Reykjanesi þátt í endurmenntunarferð til Danmerkur innan verkefnisins „Tides of Change: Sustainability and Climate Awareness in Coastal Regions through UNESCO School Collaboration“. Verkefnið er leitt af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS), með þátttöku GeoCamp Iceland, Reykjanes UNESCO Global Geopark og allra grunnskóla á svæðinu. Markmið þess er að efla loftslagsfræðslu, haflæsi og vettvangsnám í gegnum alþjóðlegt samstarf UNESCO skóla. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins og er hluti af KA1 náms- og endurmenntunarferðum kennara.
Þátttakendur komu frá átta af tíu grunnskólum innan Reykjanes jarðvangs og eru allir virkir í UNESCO starfi sinna skóla. Sameiginleg áhersla hópsins er á sjálfbærni, útikennslu og þróun kennsluhátta sem tengja nemendur við náttúruna. Ferðin fól í sér vettvangsheimsóknir og starfsnám (job-shadowing) hjá UNESCO skólum og jarðvöngum í Danmörku. Fyrsta heimsóknin var í Odsherred UNESCO Global Geopark, þar sem kynntar voru fjölbreyttar aðferðir í útikennslu og vettvangsnámi. Þar kom skýrt fram hvernig jarðvangar geta stutt skóla við að þróa átthagafræði og styrkja tengsl samfélags við náttúruna.
Í framhaldi var Rantzausminde-skóli í Svendborg heimsóttur, en hann er staðsettur innan jarðvangsins á Suður-Fjóni, Geopark Det Sydfynske Øhav. Skólinn leggur mikla áherslu á alþjóðlegt samstarf, menningarlæsi og verklega kennslu, með vel búinni aðstöðu fyrir skapandi greinar og tæknivinnu. Einnig var farið í heimsókn í Revsvindinge Friskole þar sem þátttakendur kynntust hugmyndafræði dönsku frískólanna, þar sem foreldrar bera ábyrgð á rekstri skólanna. Heimsóknin gaf innsýn í fjölbreytt skipulag skólastarfs og samfélagslega þátttöku í menntun.
Sérstök áhersla var lögð á sjálfbærni í heimsókn til Holluf Pile-skólans í Odense, sem hefur verið UNESCO skóli um árabil. Þar var kynnt verkefnið „Fra haver til maver“, þar sem nemendur rækta, uppskera og elda eigin mat. Verkefnið tengir saman umhverfisvitund, fæðuþekkingu og verklega kennslu í útinámi, stutt af öflugri aðstöðu utandyra. Ferðinni lauk með þátttöku á náttúrufræðikennararáðstefnunni Big Bang í Odense, þar sem þátttakendur kynntust nýjungum í kennsluaðferðum, vinnustofum og kennslugögnum á sviði raunvísinda og útikennslu.
Endurmenntunarferðin er hluti af stærra Erasmus+ verkefni sem miðar að því að efla hæfni kennara í loftslagsfræðslu, sjálfbærni og útinámi, ásamt því að styrkja samstarf UNESCO skóla og jarðvanga á strandsvæðum. Þekking og reynsla sem aflað var í ferðinni mun nýtast í skólastarfi á Reykjanesi, meðal annars við þróun kennsluáætlana, vettvangsnáms og innleiðingu UNESCO sjálfbærnivika í skólum svæðisins.