Ferðaþjónusta og landeigendur – upplýsingar vegna Almyrkva 2026
Undirbúningur fyrir almyrkva þann 12. ágúst 2026 er í fullum gangi á Reykjanesi. Um er að ræða einstakan atburð sem mun laða að mikinn fjölda gesta, bæði innlendra og erlendra, og kallar á vandaðan undirbúning í samstarfi við ferðaþjónustu, landeigendur og aðra þjónustuaðila á svæðinu.
Fjallað var um verkefnið í ítarlegu viðtali við Þuríði H. Aradóttur Braun í Víkurfréttum, þar sem farið er yfir umfang og áskoranir verkefnisins. Sjá nánar á vef Víkurfrétta.
Óskað eftir upplýsingum frá landeigendum og þjónustuaðilum
Á fundi samráðshóps um almyrkvann á landsvísu kom fram mikilvægi þess að fá heildaryfirsýn yfir þá aðstöðu sem verður í boði á svæðinu á degi atburðarins.
Við óskum því eftir upplýsingum frá:
- Landeigendum sem hyggjast bjóða upp á bílastæði
- Ferðaþjónustuaðilum sem ætla að opna svæði fyrir gesti
- Rekstraraðilum tjaldsvæða
- Aðilum sem eru að skoða að bjóða upp á tímabundna þjónustu (t.d. bílastæði, aðstöðu, viðburði)
Við biðjum ykkur um að senda eftirfarandi upplýsingar:
- Staðsetning svæðis (heimilisfang eða GPS-hnit)
- Áætlaður fjöldi bílastæða
- Hvort gjaldtaka verði og með hvaða hætti
- Upplýsingar um tjaldsvæði (ef við á) og fjölda stæða
- Áætlaður opnunartími / fyrirkomulag
Markmiðið er að:
- Meta álag á svæðinu
- Skipuleggja umferð og öryggismál
- Átta okkur á hvar fólk mun gista
- Tryggja samræmda upplýsingagjöf
Mikilvægt fyrir heildarskipulag
Almyrkvinn er ekki staðbundinn atburður heldur nær hann yfir allt Reykjanesið. Heildarmynd af bílastæðum og gistingu er lykilforsenda þess að hægt sé að skipuleggja:
- Umferðarstýringu
- Viðbragðsáætlanir
- Fjarskipta- og öryggisviðbúnað
- Upplýsingamiðlun til gesta
Við hvetjum því alla sem eru að huga að einhverri starfsemi á þessum degi að hafa samband sem fyrst.
Sameiginlegur kynningarvefur fyrir svæðið
Settur verður upp sérstök upplýsingasíða fyrir svæðið fyrir atburðinn, þar sem við setjum fram upplýsingar um umferðarstýringar, þjónustu ofl. sem getur aðstoðað við skipulagningu og undirbúning. Við komum til með að kynna hann betur um leið og hann fer í loftið.
Vefurinn https://eclipse2026.is/ kemur til með að vera kjarna upplýsingasíða um atburðinn sjálfan og kort á þeim vef gefur góða mynd af aðtæðum á deginum. Hvort sjáist til almyrkva á þínum stað eða við þitt fyrirtæki og hvernig.
Við hvetjum ykkur til að taka virkan þátt í undirbúningi þessa sögulega atburðar. Með góðri samvinnu getum við tryggt öryggi, góða upplifun og jákvæða ímynd svæðisins.
Vinsamlegast sendið upplýsingar eða hafið samband varðandi upplýsingarnar hér að ofan við Þuríði hjá Markaðsstofu Reykjaness, thura@visitreykjanes.is eða í síma 420 3288.