Fræðslusýning um almyrkva á sólu opnuð á Byggðasafninu á Garðskaga
Í aðdraganda almyrkvans á sólu sem verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026 hefur verið opnuð fræðslusýning á Byggðasafninu á Garðskaga. Sýningin er ætluð jafnt íbúum sem gestum sem vilja fræðast um þetta einstaka náttúrufyrirbæri og undirbúa sig fyrir daginn.
Sýningin er sett upp í samstarfi við Sævar Helga Bragason, Stjörnu-Sævar, sem lagði til fræðsluefni á tíu fræðslu- og sýningarspjöld. Þar er meðal annars fjallað um hvað almyrkvi er, hvernig hann verður til, hvernig best er að njóta hans á öruggan hátt og hvers vegna almyrkvar eru svo sjaldgæfir.
Fræðslusýningin er bæði á íslensku og ensku og er því aðgengileg jafnt innlendum sem erlendum gestum. Verkefnið hlaut styrk frá Menningarsjóði Suðurnesjabæjar og Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, sem studdu gerð sýningarinnar.
Gestir geta einnig nálgast bókina Sólmyrkvar – vísindalæsi eftir Sævar Helga á safninu, auk þess sem þar eru seld sérstök sólmyrkvagleraugu með merki Suðurnesjabæjar.
Byggðasafnið á Garðskaga er opið alla daga frá kl. 10:00–17:00. Aðgangur að safninu og fræðslusýningunni er ókeypis og eru allir velkomnir að heimsækja sýninguna í aðdraganda þessa sögulega atburðar.

Sólmyrkvar – vísindalæsi eftir Sævar Helga