Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gönguleiðir lokaðar

Endurskoðað kl. 13.00
Merardalaleið
Merardalaleið

Lokað er að gosstöðvunum.  Staðan verður endurmetin klukkan eitt í dag eftir fund viðbragðsaðila. 

Reykur frá gróðureldum berst yfir gönguleið að gosstöðvum.  Við þessar aðstæður getur lögreglustjóri ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara.  

Nú er unnið að því að slökkva í gróðureldum norðaustan við Keili í átt að útsýnisstað við Hraunsels – Vatnsfell.   Þyrla landhelgisgæslunnar kemur sem fyrr að slökkvistarfi. 

Þrátt fyrir að lokað sé inn á svæðið þurftu björgunarsveitir eftir sem áður að leita að tveimur ferðamönnum í nótt. Karlmanni á fertugsaldri sem fannst á Höskuldarvallavegi á sjötta tímanum í morgun og konu sem fannst austan við Keli á þriðja tímanum í nótt.  

Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag:

Norðan og norðvestan 5-8 m/s, en bætir heldur í vind síðdegis á morgun. Lægir seint annað kvöld. Gasmengun berst til suðurs og má því búast við að hennar verði vart á Suðurstrandarvegi og á gönguleiðum að gosstöðvunum. Spá gerð: 17.07.2023 08:02. Gildir til: 18.07.2023 23:59.

Mynd tekin af Meradalaleið um kl. 6:30 í morgun.  Á myndinni má sjá gosmökkinn stíga upp frá gígnum við Litla Hrút og berast hátt yfir gönguleiðina til suðurs út á sjó og reykjarmökk frá gróðureldum liggja yfir gönguleiðinni. Vonir standa til að geta slökkt í þessum eldum fljótlega og í framhaldi af því að opna Meradalaleið.