Green Footprint: Unnið að fræðsluefni um ábyrga ferðamennsku á verkefnafundinum í Róm
Green Footprint er Erasmus+ verkefni undir forystu Markaðsstofu Reykjaness. Samstarfsaðilar eru Galileo á Ítalíu, Lanzarote and Chinijo Islands UNESCO Global Geopark á Spáni og GeoCamp Iceland. Verkefnið stendur til júlí 2027 og miðar að því að efla skilning ungra ferðalanga, fræðsluaðila og skipuleggjenda ferða á áhrifum ferðamennsku á náttúru og samfélög.
Fundurinn í Róm var annar staðfundur samstarfsaðilanna og fylgdi eftir upphafsfundi á Lanzarote í mars. Þar fóru þátttakendur yfir fræðslumyndbönd sem hafa verið þróuð á ensku, ítölsku og spænsku. Einnig var undirbúin íslensk útgáfa og rætt um hugmyndir að nýjum myndböndum frá þátttökulöndunum.
Myndböndunum er ætlað að hjálpa ungu fólki að taka upplýstar ákvarðanir á ferðalögum og sýna meiri tillitssemi gagnvart náttúru og heimafólki. Á fundinum var jafnframt lagður grunnur að handbók fyrir fræðsluaðila og fyrstu hugmyndir að þjálfun á netinu ræddar.
Samstarfsaðilar heimsóttu einnig fornleifagarðinn Ostia Antica. Alessandro D’Alessio, forstöðumaður garðsins, tók á móti hópnum og áréttaði vilja garðsins til að taka þátt í verkefninu.
Ábyrg ferðamennska skiptir miklu máli á Reykjanesi þar sem viðkvæm náttúra og einstakt jarðfræðilegt landslag kalla á aðgát. Með Green Footprint er unnið að aðgengilegu fræðsluefni sem hjálpar ferðalöngum að skilja áhrif sín og stuðla að því að heimsóknir þeirra hafi jákvæð áhrif.
Lokafundur verkefnisins verður haldinn á Íslandi árið 2027.