Grindavík – saman í sókn: Öflug fyrirtæki komin um borð
Verkefnið Grindavík – saman í sókn fer formlega af stað þann 4. júní næstkomandi og þegar hefur fjölbreyttur hópur fyrirtækja skráð þátttöku sína. Markmið verkefnisins er að styðja við uppbyggingu, samstarf og framtíðarsýn atvinnulífsins í Grindavík.
Þátttakendur munu vinna saman í verkefnahópum sem snúa meðal annars að vöruþróun, upplifun, markaðssetningu og nýsköpun. Þá er einnig stefnt að stofnun formlegs félags atvinnurekenda í Grindavík sem verði vettvangur fyrir sameiginleg hagsmunamál og aukið samstarf fyrirtækja á svæðinu.
Eftirfarandi fyrirtæki hafa þegar skráð þátttöku sína og endurspegla þann fjölbreytileika og kraft sem einkennir atvinnulífið í Grindavík:
- Converted Water Tower
- Neskja
- Sæbýli ehf.
- Bláa Lónið
- Fisktækniskóli Íslands
- Design of Iceland ehf.
- Vísir ehf.
- Sólskip ehf.
- Hérastubbur ehf.
- Gistihús Grindavík ehf.
- PGV Framtíðarform ehf.
- VIGT
- Fishhouse
- Discover Grindavík
- 4×4 Fjórhjólaævintýri
Verkefnið er hluti af áframhaldandi uppbyggingu og þróun á Suðurnesjum þar sem áhersla er lögð á samvinnu, seiglu og jákvæða framtíðarsýn fyrir svæðið.
Enn er opið fyrir skráningar og eru fyrirtæki í Grindavík hvött til að taka þátt í verkefninu.
Umsóknarfrestur er til 28. maí 2026.