Jarðvangsvikan verður jarðvangsmánuður
Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að Reykjanes jarðvangur varð UNESCO Global Geopark fögunum við viku jarðvanga frá 15. maí til 8. júní n.k. með menningar-, fræðslu og útivistar viðburðum í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum yfir það tímabil.
Fyrirtækjum á Suðurnesjum býðst að taka þátt í þessum mánuði upplifana og vitundarvakningu um jarðvanginn, hvort sem um er að ræða tilboð eða uppákomur á þessu tímabili. Fyrirtæki sem taka þátt koma til með að birtast á vefsíðum og miðlum visitreykjanes.is og reykjanesgeopark.is og inn á dagskránni.
Áhugasamir geta sent fyrirspurn eða upplýsingar á Daníel Einarsson hjá Reykjanes jarðvangi: daniel@reykjanesgeopark.is.