Kynningarfundur vegna úthlutunar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Ferðamálastofa stendur fyrir upplýsingafundi fyrir væntanlega umsækjendur í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 8.október kl. 13 - 15 og er haldinn á Teams. Opnað var fyrir umsóknir þann 28.september og umsóknarfrestur er til kl. 13 þann 27.október 2026.
Skráning á fundinn fer fram hér.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Nánar um sjóðinn
Á fundinum er meðal annars farið yfir:
-
Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
-
Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
-
Áherslur ráðherra
-
Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
-
Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?
Kynnar eru Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir og Snorri Valsson.
Upptaka frá fundinum verður aðgengileg fljótlega að fundi loknum.