Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Lifandi laugardagur – náttúrusmiðja með Reykjanes jarðvangi

Reykjanes jarðvangur þakkar fyrir góða þátttöku í Náttúrusmiðju á Lifandi laugardegi í Duus Safnahúsum um helgina.
 
Það var gaman að sjá fjölskyldur koma saman og eiga góða stund saman, en fræðast í leiðinni um spennandi náttúru í jarðvanginum okkar. Í boði var að skoða hvernig sigdalir geta myndast með einfaldri tilraun þar sem blaðra og sandur komu við sögu. Hægt var að kynnast hraunkristöllum með smásjá og skoða heim Ólivina - sem eru kristallar sem myndast þegar kvika kólnar eftir eldgos. Föndurstöð fyrir kortaáhugamenn var mjög vinsæl þar sem hægt var að skoða mismunandi tegundir eldfjalla sem eru sýnileg frá Reykjanesbrautinni, klippa þau út, lita þau og líma svo inn á kort af Reykjanes jarðvangi.

Svo var líka í boði að setjast saman og föndra eigin Vætti eða Skottur úr náttúrulegum efnivið í anda sögunnar: Veröld vættanna – Bergrisinn vaknar.
 
Umsjón með þessari náttúrusmiðju höfðu Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi og Brynja Stefánsdóttir, náttúrufræðikennari í Stapaskóla í Reykjanesbæ.