Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í vinnustofum Visit Iceland í Bretlandi og á Írlandi
Markaðsstofa Reykjaness tók nýverið þátt í tveimur alþjóðlegum vinnustofum á vegum Visit Iceland sem haldnar voru í Edinborg og Dublin dagana 3. og 4. febrúar. Vinnustofurnar voru hluti af markvissu kynningarstarfi Íslands á erlendum mörkuðum og komu saman alls 16 samstarfsaðilar úr íslenskri ferðaþjónustu til að kynna landið sem heilsársáfangastað.
Hildigunnur M. Kristinsdóttir, verkefnastjóri miðlana hjá Markaðsstofu Reykjaness, fór fyrir hönd markaðsstofunnar og tók þátt í vinnustofunum í Edinborg og Dublin. Þar gafst tækifæri til að eiga beint samtal við erlenda ferðaþjónustuaðila, ferðaskrifstofur og söluaðila, kynna Reykjanesið sem fjölbreyttan áfangastað og styrkja tengsl við lykilaðila á mörkuðum í Bretlandi og á Írlandi.
Á vinnustofunum var lögð áhersla á að miðla fjölbreyttum upplifunum, gæðum ferðaþjónustunnar og sérstöðu Íslands þar sem Reykjanesið gegnir mikilvægu hlutverki með nálægð sinni við Keflavíkurflugvöll, einstaka náttúru, jarðfræðilega sérstöðu og vaxandi framboð upplifana allt árið um kring. Þátttakan skapaði jafnframt dýrmætt tækifæri til að fylgjast með áherslum markaða, ræða þróun í eftirspurn og deila reynslu með öðrum íslenskum ferðaþjónustuaðilum.
Þátttaka Markaðsstofu Reykjaness í vinnustofunum er hluti af áframhaldandi alþjóðlegu kynningar- og tengslastarfi, þar sem lögð er áhersla á að efla sýnileika Reykjaness á lykilmörkuðum, styðja við samstarf við ferðaþjónustuna og styrkja ímynd svæðisins sem sjálfbærs og spennandi áfangastaðar.

