Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Móttaka skemmtiferðaskipa í Keflavíkurhöfn – Fundur, samtal og vinnustofa með Nordic Port Group

Fundur og vinnustofa um móttöku skemmtiferðaskipa í Keflavíkurhöfn verður haldin 11. mars 2026 frá kl. 14:30–16:00 á Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ. Viðburðurinn er liður í áframhaldandi þróun og markaðssetningu Keflavíkurhafnar sem áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip.

Á fundinum verður farið yfir stöðuna á komu skipa, markaðssetningu og þróun verkefnisins. Ráðgjafar frá Nordic Port Group, þeir Ludwig Böss og Linus Mattson taka þátt í fundinum.

Í framhaldi verður opið samtal og vinnustofa þar sem þátttakendur geta komið með ábendingar, deilt reynslu og rætt tækifæri tengd móttöku skemmtiferðaskipa.

Dagskrá

  • Skipakomur og bókanir, staðan frá síðasta ári – Halldór Karl Hermannsson, Sviðsstjóri atvinnu- og hafnamála í Reykjanesbæ
  • Markaðssetning, þróun og kynning – Þuríður H. Aradóttir Braun, Forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness
  • Ímynd, markaðssetning og þróun Keflavíkurhafnar fyrir skemmtiferðaskip – Ludwig Böss og Linus Mattson, Nordic Port Group
  • Samtal og vinnustofa með þátttakendum

Fundurinn er ætlaður hagsmunaaðilum og öllum þeim sem koma að móttöku og þjónustu við skemmtiferðaskip á svæðinu. Athugið að fundurinn fer fram bæði á íslensku og ensku, nauðsynlegt er að skrá sig til að staðfesta þátttöku.

Skráðu þig á viðburðinn hér