Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Nemendur frá WPI vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum á Reykjanesi

Tveir hópar nemenda frá Worcester Polytechnic Institute (WPI) í Bandaríkjunum dvelja þessa dagana á Íslandi og vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark.
Frá ferð hópanna um Reykjanesið í liðinni viku.
Frá ferð hópanna um Reykjanesið í liðinni viku.

Tveir hópar nemenda frá Worcester Polytechnic Institute (WPI) í Bandaríkjunum dvelja þessa dagana á Íslandi og vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark.

Verkefnin snúa annars vegar að stafrænni ásýnd og miðlun Reykjanes UNESCO Global Geopark og hins vegar að ferðahegðun, öryggi og þróun áfangastaða á Reykjanesi. Nemendurnir munu næstu vikurnar sinna vettvangsvinnu, afla gagna, ræða við hagaðila og skoða erlendar fyrirmyndir áður en þeir leggja fram niðurstöður og tillögur sem nýtast í áframhaldandi þróunarvinnu á svæðinu.

Stafræn framtíð Reykjanes UNESCO Global Geopark

Annar hópurinn vinnur með Reykjanes UNESCO Global Geopark að verkefni sem snýr að vefsíðu og stafrænni ásýnd jarðvangsins. Verkefnið kemur á góðum tíma þar sem nú er unnið að þróun og yfirfærslu vefsvæðis jarðvangsins í nánari tengingu við vef Visit Reykjanes.

Nemendurnir munu meðal annars skoða hvernig aðrir jarðvangar og sambærileg UNESCO-svæði miðla upplýsingum á vef og öðrum stafrænum miðlum. Einnig verður horft til dæma þar sem jarðvangar og áfangastaðastofur vinna náið saman að upplýsingagjöf og miðlun.

Markmiðið er að skoða hvaða stafræna viðvera hentar Reykjanes jarðvangi með hliðsjón af hlutverki hans, markhópum og umfangi starfseminnar. Þar verður meðal annars horft til þess hvernig miðla megi jarðminjum, náttúru, menningu og sögu svæðisins, efla fræðslu og vitund um jarðvanginn og tryggja að sú stafræna miðlun sem byggð er upp sé raunhæf í rekstri til lengri tíma. Verkefnið byggir þannig vel á áherslum í stefnu jarðvangsins um fræðslu, kynningarmál og aukna vitund um Reykjanes UNESCO Global Geopark.

Ferðahegðun, öryggi og þróun áfangastaða

Hinn hópurinn vinnur rannsóknar- og þróunarverkefni fyrir Markaðsstofu Reykjaness sem snýr að ferðahegðun gesta, öryggi og þróun áfangastaða innan Reykjaness.

Í verkefninu verður meðal annars horft til þess hvernig gestir ferðast um svæðið og hvernig aukin þekking á ferðamynstri og hegðun þeirra getur nýst við frekari þróun og stjórnun áfangastaðarins. Þar tengjast saman viðfangsefni á borð við öryggi gesta, upplýsingagjöf, dreifingu gesta um svæðið og hvernig gögn og rannsóknir geta stutt við ákvarðanatöku og forgangsröðun við þróun ferðamannastaða.

Verkefnið tengist þannig beint þeirri vinnu Markaðsstofu Reykjaness að þróun Reykjaness sem áfangastaðar og því að nýta gögn og þekkingu til að styðja við markvissa og sjálfbæra þróun svæðisins.

Reykjanes sem rannsóknarsvæði

Á meðan á dvölinni stendur munu nemendurnir ferðast um Reykjanes, heimsækja áfangastaði og afla gagna fyrir verkefnin. Einnig munu þeir eiga samtöl við ferðaþjónustuaðila, íbúa og aðra hagaðila sem geta veitt mikilvæga innsýn í viðfangsefnin.

Samstarfið gefur Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark tækifæri til að fá utanaðkomandi sýn á verkefni sem þegar eru í þróun og styðja þá vinnu með rannsóknum og greiningu. Að verkefnunum loknum munu nemendurnir skila niðurstöðum og tillögum sem hægt verður að nýta í áframhaldandi starfi og þróun á svæðinu.

Nemendurnir verða við rannsóknir og störf á Reykjanesi næstu vikurnar.