Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opnað fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2027

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2027. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á uppbyggingu á minna sóttum svæðum og verkefni sem stuðla að lengingu ferðatímabilsins. Umsóknarfrestur er til 27. október kl. 13:00.
Brimketill
Brimketill

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2027. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 þriðjudaginn 27. október 2026.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða styður við uppbyggingu, viðhald og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Markmið sjóðsins er meðal annars að stuðla að auknu öryggi ferðamanna, verndun náttúru og bættri aðstöðu á ferðamannastöðum.

Við úthlutun styrkja fyrir árið 2027 verður sérstök áhersla lögð á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabilsins. Gæðamat umsókna mun taka mið af þessum áherslum.

Styrkir geta meðal annars náð til framkvæmda sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða, auk nauðsynlegrar undirbúnings- og hönnunarvinnu.

Markaðsstofa Reykjaness hvetur sveitarfélög, landeigendur og aðra hagaðila á Reykjanesi sem hafa áform um uppbyggingu ferðamannastaða að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins og nýtt gæðamatsblað áður en umsókn er skilað.

Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum Ísland.is. Athygli er vakin á því að umsóknir sem berast eftir kl. 13:00 þann 27. október koma ekki til álita.

Nánari upplýsingar, umsóknargögn og leiðbeiningar má finna á vef Ferðamálastofu: