Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Prjónarar frá Reykjanesi taka þátt í nýrri alþjóðlegri herferð Íslandsstofu

Þrír prjónarar frá Reykjanesi taka þátt í nýrri kynningarherferð Visit Iceland, AI Knittakers, þar sem íslenskir prjónarar leysa gervigreind af hólmi og taka að sér að sitja fjarfundi fyrir fólk víðs vegar um heiminn. Herferðin hófst 29. október og stendur bókanleg þjónusta prjónaranna til 20. nóvember.

Herferðin, sem ber heitið AI Knittakers – Authentic Icelandic Knittakers, er skemmtileg nálgun á fundamenningu nútímans og sívaxandi notkun gervigreindar við fundarritun. Í stað þess að láta gervigreind taka niður fundargerð býðst fólki að fá íslenskan prjónara til að sitja fundinn fyrir sig og prjóna eitt orð sem fangar það sem fram fór.

Með þessu vill Visit Iceland minna á að tíminn er dýrmætur og hvetja fólk til að verja honum í það sem raunverulega skiptir máli – hvíld, náttúru, samveru og nýjar upplifanir. Ísland er kjörinn áfangastaður til þess að hægja á og njóta lífsins.

Þrír prjónarar frá Reykjanesi taka þátt

Nærri 30 prjónarar víðs vegar um landið taka þátt í herferðinni og þar á meðal eru þrjár konur frá Reykjanesi:

  • Marta Karlsdóttir, frá Prjónasystrum, með sterka tengingu við Grindavík.
  • Hrafnhildur Stígsdóttir, búsett í Reykjanesbæ, sem hefur prjónað frá unglingsárum og nýtur þess að skapa og læra eitthvað nýtt.
  • Rannveig Lilja Garðarsdóttir (Nanný), búsett í Njarðvík, sem hefur prjónað í 60 ár og lýsir prjónaskap sem bæði sköpun og hugleiðslu.

Prjónararnir taka þátt í bókuðum fjarfundum og prjóna eitt orð úr íslenskri ull sem lýsir því sem þeim fannst standa upp úr. Þjónustan er án endurgjalds og hægt er að bóka prjónara á vef herferðarinnar.

Handverk, mannlíf og vellíðan á Reykjanesi

Markaðsstofa Reykjaness hefur tekið þátt í undirbúningi herferðarinnar í samstarfi við Íslandsstofu, meðal annars með því að finna prjónara á svæðinu og aðstoða við undirbúning og framkvæmd. Garnið sem prjónararnir nota hefur verið útvegað í samstarfi við Stapafell í Keflavík.

Þátttaka Reykjaness fellur vel að áherslum svæðisins á vellíðan, náttúruupplifanir og staðbundna menningu. Prjónaskapur hefur lengi verið hluti af íslenskri handverkshefð og fyrir marga er hann jafnframt leið til að hægja á, njóta augnabliksins og finna hugarró.

Á Reykjanesi er fjölbreytt úrval upplifana sem tengjast þessum áherslum, allt frá jarðhitaböðum og sundlaugum til gönguferða um einstakt eldfjallalandslag, strandlengju og sögustaði.

Alþjóðleg athygli á Íslandi

Herferðinni er sérstaklega beint að mörkuðum í Bretlandi og Bandaríkjunum og er henni ætlað að vekja athygli á Íslandi með óvæntri og mannlegri nálgun.

Þótt þátttöku prjónaranna ljúki 20. nóvember mun kynningarefni herferðarinnar lifa áfram og nýtast til að vekja áhuga á Íslandi sem áfangastað.

Kynntu þér herferðina og prjónarana á AIKnittaker.com.

Slóð á kynningarmyndband.