Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Próf­un á rým­ing­ar­flaut­um í Grinda­vík og Svarts­engi 26. ágúst 2026

Miðvikudaginn 26. ágúst 2026 kl. 11:00 er fyrirhugað að prófa rýmingarflautur í Grindavík og Svartsengi.

Miðvikudaginn 26. ágúst 2026 kl. 11:00 verður framkvæmd prófun á rýmingarflautum í Grindavík og við Svartsengi. Prófunin er hluti af reglubundnu verklagi til að tryggja virkni búnaðar og viðbúnað viðbragðsaðila.

Rýmingarflauturnar munu fara tvisvar í gang, annars vegar með fjarræsingu og hins vegar með handræsingu. Markmið prófunarinnar er að staðfesta að búnaðurinn virki sem skyldi og að viðbragðsáætlanir séu í samræmi við verklag.

Mikilvægt er að íbúar, starfsfólk og gestir á svæðinu séu upplýst um að um prófun sé að ræða og að ekki sé þörf á að rýma svæðið. Grindavík er opin almenningi og verða sett upp skilti til að upplýsa gesti og aðra sem kunna að verða varir við flauturnar.